Mynd: Birgir Þór Harðarson

Laun ráðherra og aðstoðarmanna samtals 636 milljónir á næsta ári

Hækka þarf framlag ríkissjóðs til rekstrar ríkisstjórnar Íslands um 153 milljónir króna vegna fjölgunar aðstoðarmanna hennar. Þeir mega vera 25 alls og er sú heimild nú nánast fullnýtt.

Rekstur rík­is­stjórnar Íslands, sem í fel­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra, er áætl­aður 636 millj­ónir króna á næsta ári, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í morg­un. Það er 38 pró­sent aukn­ing á milli ára en sam­kvæmt fjár­lögum árs­ins 2018 var áætlað að kostn­aður við rekstur hennar næmi 461 milljón króna á árinu 2018. Þar munar mestu um 153 millj­óna króna hækkun vegna launa aðstoð­ar­manna ráð­herra, sem hefur fjölgað mik­ið.

Alls má rík­is­stjórnin ráða 25 aðstoð­ar­menn og eru heim­ildir laga til slíkra ráðn­inga nú nán­ast full­nýtt­ar. Allir ráð­herrar eru til að mynda með tvo aðstoð­ar­menn en auk þeirra hefur rík­is­stjórnin ráðið tvo af þeim þremur aðstoð­ar­mönnum sem hún má ráða sam­kvæmt lög­um. Annar þeirra er Lára Björg Björns­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem hefur starfs­að­stöðu í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Hinn er Unnur Brá Kon­ráðs­dótt­ir, sem var ráð­inn í stöðu aðstoð­ar­manns til að sinna starfi sem verk­efn­is­stjóri við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­inn­ar. Unnur starfar í umboði Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Heim­ild til að fjölga

Lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­ar­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­is­stjórn­ina að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar ef þörf kref­ur. Í lög­unum segir að „meg­in­hlut­verk aðstoð­ar­manns ráð­herra er að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neytis undir yfir­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra.“ Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­­ar­­manna­­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­­ast um að ræða nán­­ustu sam­­starfs­­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Skömmu eftir að lög­unum var breytt var ráð­herrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.

Síðan hefur ráð­herrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri rík­is­stjórn­inni og í dag eru þeir ell­efu. Það þýðir að fjöldi leyfi­legra aðstoð­ar­manna hefur líka auk­ist.

xxxxxxxxx

Laun og starfs­kjör aðstoð­ar­manna ráð­herra mið­ast við kjör skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum sam­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Aðstoð­ar­menn­irnir hafa fengið dug­lega launa­hækkun á und­an­förnum árum. Sum­arið 2016 voru laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum hækkuð um allt að 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­­ar­­manna um 1,2 millj­­ónir króna á mán­uði.

Ráð­herrar hafa líka fengið umtals­verða launa­hækkun á und­an­förnum árum. Í nóv­­em­ber 2015 hækk­­aði Kjara­ráð til að mynda laun ráð­herra um 9,3 pró­­sent. Árið síð­­­ar, á kjör­dag 2016, voru laun þeirra síðan hækkuð um 35 pró­­sent. Eftir þá hækkun eru laun for­­sæt­is­ráð­herra 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­arra ráð­herra 1.826.273 krónur á mán­uði.

Kostn­að­ur­inn aldrei hærri

Kostn­aður við rekstur rík­is­stjórn­ar­innar hefur aldrei verið hærri en í ár, og hann á að hækka umtals­vert á næsta ári lík­a. 

Sam­kvæmt sam­þykktum fjár­lögum fyrir árið 2018 átti kostn­aður við rekstur rík­is­stjórn­ar­innar að vera 461 milljón króna. Ljóst er að sú upp­hæð hefur ekki dugað til að greiða laun allra ráð­herra og aðstoð­ar­manna og því má búast við að það bil verði brúað á kom­andi fjár­auka­lög­um.

Á næsta ári mun kostn­að­ur­inn svo enn aukast og verða 636 millj­ónir króna. Í krónum talið hefur aukn­ingin numið 383 millj­ónum króna frá árinu 2011 og út næsta ár, en þá á eftir að gera ráð fyrir verð­bólgu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar