Mynd: Ketut Subiyanto/Pexels

Bensínverð stendur í stað milli mánaða, innkaupaverð lækkar en hlutur olíufélaga eykst

Sá sem greiddi 15 þúsund krónur á mánuði í bensínkostnað í maí 2020 þarf nú að punga út rúmlega 137 þúsund krónum til viðbótar á ári til að kaupa sama magn af eldsneyti. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði skarpt milli mánaða en bensínlítrinn hækkaði samt í verði.

Við­mið­un­­ar­verð á bens­ín­verði hér­­­lendis er nú 341,9 krónur á lítra og hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Það hefur hækkað um 71 pró­­sent á tveimur árum og um 28 pró­­sent frá því í jan­úar síð­­ast­liðn­­­um. Upp­­­reiknað miðað við þróun vísi­­tölu neyslu­verðs á bens­ín­lítr­inn þó nokkuð í land með að ná sínu hæsta verði, en í apríl 2012 kost­aði hann um 373 krónur á núvirði. Eftir mikla hækk­un­ar­hr­inu það sem af er ári stóð bens­ín­lítr­inn nokkurn veg­inn í stað milli júní og júlí­mán­aða. Við­mið­un­ar­verðið á honum hækk­aði um 0,9 krón­ur.

Þetta má lesa út úr nýj­­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans.

Verðið hækkar þrátt fyrir að að verð á olíu á heims­mark­aði hafi lækkað um næstum fimmt­ung frá 8. jún­í.  Á sama tíma hefur gengi krónu gagn­vart Banda­­­­ríkja­­­dal veikst um næstum sex pró­sent, en það gengi hefur umtals­verð áhrif á þróun elds­­­neyt­is­verðs hér­­­­­lendis þar sem að inn­­­­­kaup á elds­­­neyti fara fram í döl­u­m. Því dýr­ari sem dal­ur­inn er, því meira borgum við fyrir bens­ín. 

Mik­il­vægt er að hafa í huga að við­mið­un­­­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­­­­­­­tölu í yfir­­­­­­­lit­i síð­­­­­­unnar Bens­ín­verð.is, sem hug­­­bún­­­að­­­ar­­­fyr­ir­tækið Seiður heldur úti, til að forð­­­­­­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­­­­­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­­­­­­ar­verðið er þó ætið með lægstu verð­­­­­­um. 

Kostar 137 þús­und meira að reka bíl en fyrir tveimur árum

Ísland fram­­­­­­leiðir vit­an­­­­­­lega ekk­ert jarð­efna­elds­­­­­­neyti heldur flytur það allt inn. Bíl­­ar sem nota jarð­efna­elds­­­­­­neyti er enn í miklum meiri­hluta hér­­­­­­­lend­­­­is. Sam­­­­­­kvæmt tölum Hag­­­­­­stofu Íslands voru bensín og dísil­bíl­­­arnir um 292 þús­und í lok árs 2021.

Sveifl­­­­urnar á heims­­­­mark­aðs­verði á olíu hafa verið gríð­­­­ar­­­­leg­­ar á und­an­­förnum mán­uðum en verð á olíu og bens­íni hefur ekki verið jafn­­hátt og það er um þessar mundir í sjö ár. Verðið fór niður í 20 dali á tunnu í apríl 2020, fór yfir 86 dali á tunnu í októ­ber. Nú er það um 97 krónur á tunnu.

Því hafa skarpar hækk­­­­­anir á elds­­­neyt­is­verði mikil áhrif á rekstr­­­ar­­­kostnað heim­ila. Ef horft er til þeirrar hækk­­­unar sem orðið hefur á við­mið­un­­­ar­verði frá því í maí 2020 þarf sá sem eyddi að jafn­­­aði 15 þús­und krónum á mán­uði í bensín þá þarf nú að borga um 26.400 krónur fyrir sama magn af bens­íni. Á árs­grund­velli er það auk­inn kostn­aður upp á 137.227 krón­­­ur. 

Góðu frétt­­irnar eru þær að mikil aukn­ing er á eign á bílum sem ganga fyrir raf­­­magni eða eru með raf­­tengi. Fjöldi þeirra tvö­­fald­að­ist frá lokum árs 2019 fram að síð­­­ustu ára­­mót­um, þegar þeir voru 21.143 tals­ins. 

Eign­ar­haldi á raf­bílum er þó nokkuð mis­skipt. Tekju­hærri og efna­meiri hópar sam­fé­lags­ins eiga auð­veld­ara um vik að kaupa slíka bíla, sem eru að jafn­aði dýr­ari en bens­ín- og dísil­bílar þrátt fyrir veru­legar skattaí­viln­an­ir. Í minn­is­blaði frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sem birt var í des­em­ber í fyrra kom meðan ann­ars fram að hæsta hlut­­fall raf­­­magns- og tengilt­vinn­bíla á þeim tíma var í Garðabæ og á Sel­tjarn­­ar­­nesi, eða um 16 pró­­sent. Í þeim sveit­ar­fé­lögum eru fjár­magnstekjur hæstar á land­in­u. 

Olíu­­­fé­lögin farin að velta hækk­­unum út í verð­lagið

Hækkun síð­­­ustu tveggja ára má rekja ann­­ars vegar til hækk­­andi heims­­mark­aðs­verðs á olíu á meðan að kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­inn geis­aði og orsak­aði hökt í öllum aðflutn­ings­keðjum í heim­inum og hins vegar til inn­­rásar Rús­s­lands í Úkra­ínu í febr­­ú­­ar, sem gerði það að verkum að heims­­mark­aðs­verðið rauk enn frekar upp.

Lík­­­legt inn­kaupa­verð olíu­­­fé­laga er nú 138,3 krónur á lítra og lækk­­aði um tæp sjö pró­­sent milli mán­aða. Til sam­an­­burðar var inn­kaupa­verðið 69,1 krónur á lítra í des­em­ber og hefur tvö­fald­ast síðan þá.

Hlutur olíu­­­fé­laga í hverjum seldum lítra hefur fylgdi ekki þessum hækk­­unum á inn­kaupa­verði framan af ári. Það þýddi að félögin voru ekki að velta hækk­unum á heims­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lag­ið. Það er nú að breyt­ast. 

Hann er nú 48 krónur eða um 14 pró­­sent af hverjum seldum lítra. Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra jókst um 29 pró­sent milli júní og júlí­mán­aða. 

Sam­an­lagt fer 138,3 krónur af hverjum seldum lítra til ann­­arra en rík­­is­ins, þ.e. þeirra sem selja smá­­sölum á elds­­neyti vör­una og til smá­sal­anna sjálfra. 

Hærra bens­ín­verð er einn af þeim þáttum sem drífa áfram verð­bólgu, sem mælist nú 9,9 pró­sent. Til að reyna að hemja hana hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti sína skarpt á skömmum tíma, upp í 4,75 pró­sent, og vænt­ingar eru um að það hækk­un­ar­ferli haldi áfram í næsta mán­uð­i. 

Hlutur rík­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra, sem sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi er nú 155,57 krónur á hvern lítra af seldu bens­íni. Það þýðir að 45,5 pró­­sent af hverjum lítra fer í rík­­is­­sjóð.

Gögn og aðferða­fræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­leg­ir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Lík­legt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­um. Mis­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­ber­ar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­að­ar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um vill­ur, lag­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarn­inn.is og er tekið fagn­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar