Nýtt Íslandsmet í bensínverði og landinn flýr í rafmagn
Heimsmarkaðsverð á bensíni og olíu hefur ekki verið hærra í sjö ár. Hlutur ríkisins í hverjum seldum bensínlítra er yfir 50 prósent en hlutdeild olíufélaga í honum hefur lækkað skarpt síðustu mánuði. Bílum sem ganga fyrir rafmagni að öllu leyti eða hluta fjölgar gríðarlega.
Viðmiðunarverð á bensínverði hérlendis er nú 270,9 krónur á lítra og hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Það hefur hækkað um 40 prósent frá því í maí 2020 og um 29 prósent á 14 mánuðum.
Alls renna 139,6 krónur af hverjum seldum lítra, 51,5 prósent, til íslenska ríkisins vegna virðisaukaskatts, almenns bensíngjalds, sérstaks bensínsgjalds og kolefnisgjalds. Hlutur olíufélaga í hverju seldum lítra er 43,2 krónur, en hann lækkar um 26,5 prósent í krónum talið frá því í desember 2021.
Það sem eftir stendur er svo líklegt innkaupaverð sem í dag nemur 88,1 krónur á lítra, en það hefur hækkar um rúmlega 27 prósent á tveimur mánuðum.
Hlutur olíufélags er reiknaður sem afgangsstærð þegar búið er að draga frá hlutdeild ríkisins í hverjum seldum bensínlítra og líklegt innkaupverð á honum frá reiknuðu viðmiðunarverði, enda haldgóðar upplýsingar um einstaka kostnaðarliði olíufélaganna ekki opinberar.
Þetta má sjá í nýjustu Bensínvakt Kjarnans sem unnin er í samvinnu við hugbúnaðarfyrirtækið Seið. Viðmiðunarverðið miðar við næstlægstu verðtölu í yfirliti síðunnar Bensínverð.is, sem Seiður heldur úti, til að forðast að einhverju leyti áhrif tímabundinnar verðsamkeppni á allra lægsta verð. Viðmiðunarverðið er þó ætið með lægstu verðum.
Flytjum inn allt jarðefnaeldsneyti
Ísland framleiðir vitanlega ekkert jarðefnaeldsneyti heldur flytur það allt inn. Bílar sem nota jarðefnaeldsneyti er enn í miklum meirihluta hérlendis. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru bensín og díselbílarnir um 320 þúsund í lok árs 2020.
Sveiflurnar á heimsmarkaðsverði á olíu hafa verið gríðarlegar á undanförnum mánuðum en verð á olíu og bensíni hefur ekki verið jafnhátt og það er um þessar mundir í sjö ár. Verðið fór niður í 20 dali á tunnu í apríl 2020, fór yfir 86 dali á tunnu í október. Nú er það um 92 krónur á tunnu.
Hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu hefur því bein áhrif á veskið hjá landsmönnum þegar það kemur fram í smásöluverðinu hérlendis og hækkar auk þess verðbólgu, sem er nú 5,7 prósent. Há verðbólga hefur leitt til þess að Seðlabanki Íslands hefur hækkað vexti um úr 0,75 prósentustig í 2,75 prósent frá því í maí í fyrra.
Fjöldi bíla sem ganga fyrir rafmagni að öllu leyti eða hluta hefur hins vegar vaxið hratt hérlendis á skömmum tíma. Í byrjun desember síðastliðinn var fjöldi tengiltvinnbíla kominn upp í 13.226 en fjöldi bíla sem gengu bara fyrir rafmagni var um tíu þúsund.
Í nýlegum tölum frá Bílgreinasambandinu, sem birtar eru á vef Félags íslenskra bifreiðareigenda, kemur fram að á fyrstu sex vikum ársins 2022 hafi nýskráningar á bílum alls verið 1.244. Það er rúmlega 51 prósent fleiri bílar en voru nýskráðir á sama tíma í fyrra. Þar af voru 33,6 prósent tengiltvinnbílar, 33,4 prósent rafmagnsbílar og hybridbílar voru 15,2 prósent. Dísilbílar voru 9,2 prósent nýskráðra en bensínbílar einungis 8,5 prósent.
Gögn og aðferðafræði
Hér að ofan er birt niðurstaða útreikninga og áætlunar á því hvernig verð á lítra af bensíni skiptist milli aðila í framsetningu GRID.
- Viðmiðunarverð er fengið frá hugbúnaðarfyrirtækinu Seið ehf. sem meðal annars heldur úti síðunni Bensínverð.is og fylgst hefur með bensínverði á flestum bensínstöðum landsins daglega síðan 2007. Miðað er við næstlægstu verðtölu í yfirlitinu til að forðast að einhverju leyti áhrif tímabundinnar verðsamkeppni á allra lægsta verð. Viðmiðunarverðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíufélagsins en reikna má með að raunin sé meðaltalið af öllu seldu bensíni á landinu.
- Hlutur ríkisins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlutfallslegir. Upplýsingar um breytingar á skattalögum eru fengnar frá Viðskiptaráði sem fylgst hefur með slíkum breytingum um árabil.
- Líklegt innkaupaverð er reiknað útfrá verði á bensíni til afhendingar í New York-höfn í upphafi mánaðar frá bandarísku orkustofnuninni EIA og miðgengi dollars gagnvart íslenskri krónu í yfirstandandi mánuði frá Seðlabanka Íslands. Í þessum útreikningum kann að skeika nokkru á hverjum tímapunkti vegna lagerstöðu, skammtímasveiflna á markaði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bensíni til afhendingar í Rotterdam, en verðupplýsingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagnaveitum. Mismunur á verði í New York og Rotterdam er þó yfirleitt mjög lítill.
- Hlutur olíufélags er loks reiknaður sem afgangsstærð enda haldgóðar upplýsingar um einstaka kostnaðarliði olíufélaganna ekki opinberar. Hafa ber í huga að þar sem viðmiðunarverð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill einhverju hærri sé litið til heildarviðskipta með bensín á Íslandi.
Verðupplýsingar miðast við verðlag hvers tíma. Gögnin eru uppfærð mánaðarlega í kringum 15. hvers mánaðar. Fyrirvari er gerður um skekkjumörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreiknaða liði. Ábendingar um villur, lagfæringar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarninn.is og er tekið fagnandi.