Orkan orkan
Orkan

„Sársaukinn við dæluna“ eykst: Lítrinn orðinn 72 prósentum dýrari en fyrir tveimur árum

Verð á lítra af bensíni á Íslandi er í dag frá tæpum 320 krónum upp í rúmar 350 krónur, þar sem það er dýrast. Olíufélögin eru einungis að taka til sín tæp 11 prósent af krónunum sem greiddar eru fyrir hvern seldan lítra um þessar mundir.

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni á Íslandi er nú 341 krónur á lítra og stekkur lítra­verðið upp um 33,9 krónur frá fyrri mán­uði. Það er stærsta stökk sem orðið hefur á milli mán­aða, að minnsta kosti frá árinu 2007, sam­kvæmt því sem lesa má út úr nýj­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans.

Verðið á bens­íni hefur aldrei verið hærra á Íslandi í krónum talið og kostar bens­ín­lítr­inn nú 72 pró­sentum meira en fyrir tveimur árum og 27 pró­sentum meira en í jan­ú­ar­mán­uði.

Hlutur rík­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra, sem sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi er nú 155,4 krónur krónur á hvern lítra af seldu bens­íni. Það þýðir að 45,6 pró­­sent af hverjum lítra fer í rík­­is­­sjóð. Hlutur rík­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra hefur aldrei verið hærri í krónum talið.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að við­mið­un­­­ar­verðið sem hér er gengið út frá, 341 króna á lítra, miðar við næst­lægstu verð­­­­­­­tölu í yfir­­­­­­­lit­i síð­­­­­­unnar Bens­ín­verð.is, sem hug­­­bún­­­að­­­ar­­­fyr­ir­tækið Seiður heldur úti, til að forð­­­­­­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­­­­­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­­­­­­ar­verðið er þó ætíð með lægstu verð­­­­­­um.

Hæstu verð á bens­íni í dag er nú 352 krónur á bens­ín­lítra, á ýmsum bens­ín­­­stöðvum N1, en lægsta verðið er 318,7 krónur á lítra, á bens­ín­­­stöð Costco. Verðið er svo ögn hærra eða tæpar 321 krónur á völdum bens­ín­stöðvum Orkunn­ar, ÓB og Atl­antsol­íu.

Það munar því sem stendur stendur 10,4 pró­­­sentum á hæsta og lægsta verð­i bens­ín­líters­ins á Íslandi.

Olíu­fé­lögin að taka til sín tæp 11 pró­sent af hverjum seldum lítra

Inn­kaupa­verð á bens­ín­lítr­anum ræðst einkum af tveimur þátt­um: heims­mark­aðs­verði á olíu og gengi krón­unnar gagn­vart banda­ríkja­dal. Báðir þessir þættir hafa sveifl­ast mjög á und­an­förnu.

Sam­kvæmt því sem fram kemur í bens­ín­vakt Kjarn­ans er lík­legt inn­kaupa­verð olíu­fé­lag­anna á lítr­anum í dag 148,53 krón­ur, sem sam­svarar 17 pró­sent hækkun á milli mán­aða. Til sam­an­burðar var lík­legt inn­kaupa­verð olíu­fé­lag­anna ein­ungis 69,1 króna á líter­inn í des­em­ber­mán­uði og hefur því hækka um 114 pró­sent síðan þá.

Miðað við það er hlutur olíu­fé­lag­anna af hverjum seldum lítra að rísa aðeins á milli mán­aða og er nú 37,07 krónur á hvern seldan lítra. Inni í þess­ari tölu er álagn­ing, auk kostn­aðar við flutn­inga og trygg­ing­ar, en þær upp­lýs­ingar liggja ekki opin­ber­lega fyrir og því er ekki hægt að reikna álagn­ingu olíu­fé­lags­ins sér­stak­lega.

Vís­bend­ingar eru þó um að olíu­fé­lögin séu enn ekki búin að skila hækk­unum á inn­kaupa­verði að fullu út í sína eigin verð­lagn­ingu, en olíu­fé­lögin eru um þessar mundir að taka um 10,9 pró­sent af verði hvers lítra til sín, sem er við lægri mörk þess sem verið hefur raunin á und­an­förnum árum, en algengt hefur verið að olíu­fé­lögin taki til sín um 15-20 pró­sent af krón­unum sem bens­ín­lítr­inn kost­ar.

Ný útfærsla umferð­ar­gjalda á leið­inni

Eins og fjallað var um í vik­unni hafa stjórn­völd ákveðið að flýta inn­leið­ingu nýrra gjalda vegna umferðar og elds­neyt­is. Gert er ráð fyrir því að þessum nýju gjöldum skili 3,4 millj­örðum í rík­is­kass­ann, strax á næsta ári, en þessi nýja skatt­lagn­ing á akstur hefur ekki verið útfærð nákvæm­lega.

Ljóst er þó að henni sé ætlað að ná að ein­hverju fé í rík­is­sjóð þeim sem í dag keyra um á raf­bíl og láta sér þær miklu bens­ín­verðs­hækk­anir sem nú ganga yfir í léttu rúmi liggja.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar lagði til í nefnd­ar­á­liti sínu að við breytta skatt­lagn­ingu að meðal ann­ars yrði horft til þyngdar öku­tækja og lagði það fyrir rík­is­stjórn­ina að láta breyt­ingar sem end­ur­spegla notkun allra öku­tækja á vega­kerf­inu.

Sam­kvæmt svari sem Kjarn­inn fékk frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, er tekju­öfl­un­ar­kerfið „í smíð­um“ og með því „horft til þess að gera gjald­töku ein­fald­ari og aðgengi­legri og að fyr­ir­komu­lagið mið­ist í auknum mæli við notkun og sam­ræm­ist þörf á áfram­hald­andi útgjöldum við nýfram­kvæmd­ir, við­hald og rekstur vega­kerf­is­ins“.

Við lok síð­asta árs voru um 292 þús­und bens­ín- og dísel­bílar á Íslandi en rúm­lega 21 þús­und bílar sem ganga fyrir raf­magni eða eru með raf­tengi.

Gögn og aðferða­fræði

Hér að ofan er birt nið­­ur­­staða útreikn­inga og áætl­­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­­ar­verð er fengið frá hug­­bún­­að­­ar­­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­­ars heldur úti síð­­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­­stöðum lands­ins dag­­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­­tölu í yfir­­lit­inu til að forð­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­­­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­­falls­­leg­­ir. Upp­­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Lík­­­legt inn­­­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­­stofn­un­inni EIA og mið­­gengi doll­­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­punkti vegna lag­er­­stöðu, skamm­­tíma­­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­upp­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­um. Mis­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­­­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­­stærð enda hald­­góðar upp­­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­­ar­liði olíu­­­fé­lag­anna ekki opin­ber­­ar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­­ar­við­­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­­upp­­lýs­ingar mið­­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­­­færð mán­að­­ar­­lega í kringum 15. hvers mán­að­­ar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um vill­­ur, lag­­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarn­inn.is og er tekið fagn­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnArnar Þór Ingólfsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar