Flugfélagið WOW air mun næsta sumar hefja flug til bandarísku borganna Los Angeles og San Francisco í Kaliforníuríki. Flogið verður fjórum sinnum í viku til Los Angeles og fimm sinnum í viku til San Francisco. WOW air verður fyrsta íslenska flugfélagið til að bjóða upp á beint flug til Los Angeles, samkvæmt tilkynningu frá félaginu til fjölmiðla.
Fram kemur að þrjár nýjar Airbus A330-300 breiðþotur verða notaðar í flug til vesturstrandar Bandaríkjanna. Þoturnar eru þær stærstu sem flogið hafa í áætlunarflugi til og frá Íslandi.
„Airbus A330-300 vélar eru sparneytnar, umhverfisvænar og langdrægar breiðþotur sem hafa drægni upp á 11.750 km. Vélarnar geta tekið að hámarki 440 farþega en vélar WOW air verða með 340 sætum til þess að hægt sé að bjóða upp á aukið sætabil og þægindi. Lengd þeirra er 64 metrar og vænghafið er 60 metrar. Listaverð á nýrri Airbus A330-300 eru um 32 milljarðar íslenskra króna. 1200 slíkar vélar hafa verið framleiddar í heiminum og eru afar vinsælar vélar hjá helstu flugfélögum í heimi,“ segir um vélarnar í tilkynningu Wow.
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, segir að Norður-Ameríku flug félagsins hafi gengið frábærlega og sætanýting hafi frá upphafi verið yfir 90 prósent. „Það liggur því beinast við að bæta við Los Angeles og San Fransisco sem eru stórkostlegar borgir í Kaliforníu og styrkja enn frekar leiðarkerfi okkar. Ljóst er að það er mikil þörf og eftirspurn eftir góðu lággjaldaflugfélagi sem flýgur yfir Atlantshafið. Við höfum nú þegar lækkað verð um tugi prósenta og munum að sjálfsögðu halda því áfram. Við hlökkum til að bjóða upp á þessa tvo áfangastaði á vesturströnd Bandaríkjanna á frábærum verðum. Með þessari aukningu mun WOW air meira en tvöfalda sætaframboð sitt á næsta ári frá 900 þúsund sætum í ár í tæplega 2 milljónir sæta á næsta ári“