WOW flýgur til Los Angeles og San Francisco

Flugfélagið WOW air hefur flug til Los Angeles og San Francisco í Bandaríkjunum næsta sumar. Sætaframboð flugfélagsins tvöfaldast.

WOW-Air-Airbus-A320-Heisterkamp.jpg
Auglýsing

Flug­fé­lagið WOW air mun næsta sumar hefja flug til banda­rísku borg­anna Los Ang­eles og San Francisco í Kali­forn­íu­ríki. Flogið verður fjórum sinnum í viku til Los Ang­eles og fimm sinnum í viku til San Francisco. WOW air verður fyrsta íslenska flug­fé­lagið til að bjóða upp á beint flug til Los Ang­el­es, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá félag­inu til fjöl­miðla.

Fram kemur að þrjár nýjar Air­bus A330-300 breið­þotur verða not­aðar í flug til vest­ur­strandar Banda­ríkj­anna. Þot­urnar eru þær stærstu sem flogið hafa í áætl­un­ar­flugi til og frá Ísland­i. 

Air­bus A330-300 vélar eru spar­neytn­ar, umhverf­is­vænar og lang­drægar breið­þotur sem hafa drægni upp á 11.750 km. Vél­arnar geta tekið að hámarki 440 far­þega en vélar WOW air verða með 340 sætum til þess að hægt sé að bjóða upp á aukið sæta­bil og þæg­indi. Lengd þeirra er 64 metrar og væng­hafið er 60 metr­ar. Lista­verð á nýrri Air­bus A330-300 eru um 32 millj­arðar íslenskra króna. 1200 slíkar vélar hafa verið fram­leiddar í heim­inum og eru afar vin­sælar vélar hjá helstu flug­fé­lögum í heim­i,“ segir um vél­arnar í til­kynn­ingu Wow.

Auglýsing

Skúli Mog­en­sen, for­stjóri og stofn­andi WOW air, segir að Norð­ur­-Am­er­íku flug félags­ins hafi gengið frá­bær­lega og sæta­nýt­ing hafi frá upp­hafi verið yfir 90 pró­sent. „Það liggur því bein­ast við að bæta við Los Ang­eles og San Frans­isco sem eru stór­kost­legar borgir í Kali­forníu og styrkja enn frekar leið­ar­kerfi okk­ar. Ljóst er að það er mikil þörf og eft­ir­spurn eftir góðu lággjalda­flug­fé­lagi sem flýgur yfir Atl­ants­haf­ið. Við höfum nú þegar lækkað verð um tugi pró­senta og munum að sjálf­sögðu halda því áfram.  Við hlökkum til að bjóða upp á þessa tvo áfanga­staði á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna á frá­bærum verð­um. Með þess­ari aukn­ingu mun WOW air meira en tvö­falda sæta­fram­boð sitt á næsta ári frá 900 þús­und sætum í ár í tæp­lega 2 millj­ónir sæta á næsta ári“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None