ASÍ: Samtök atvinnulífsins halda starfsmönnum Rio Tinto í gíslingu

riotinto.jpg
Auglýsing

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands sakar Sam­tök atvinnu­lífs­ins um að ganga erinda Rio Tinto og að halda starfs­mönnum álvers­ins í gísl­ingu í tengslum við kjara­deilu starfs­fólks­ins í álver­inu í Straums­vík. „Þannig er komið í veg fyrir að þeim verði boðin sama launa­hækkun og flestir launa­menn á íslenskum vinnu­mark­aði hafa feng­ið.“ 

Harðar kjara­deilur starfs­fólks­ins í álver­inu við vinnu­veit­endur sína hafa nú staðið í langan tíma, en kjara­samn­ingur rann út fyrir tæpum ell­efu mán­uð­um.

Í yfir­lýs­ingu frá mið­stjórn ASÍ er þess kraf­ist að SA beiti sér fyrir því að gengið verði frá kjara­samn­ingi á milli álvers­ins í Straums­vík og verka­lýðs­fé­laga sem starfs­fólkið þar er í. 

Auglýsing

„Síð­ustu mán­uði hefur verið lögð mikil vinna í að móta nýtt íslenskt samn­inga­líkan að nor­rænni fyr­ir­mynd. Staðan sem upp er komin í Straums­vík og fram­ganga SA í mál­inu er afleitt inn­legg í það sam­komu­lag sem aðilar á vinnu­mark­aði skrif­uðu undir fyrir fáeinum dög­um,“ segir mið­stjórn­in. Ef Sam­tök atvinnu­líf­ins fari ekki að starfa í anda þess sam­komu­lags og ganga frá kjara­samn­ingi verði trú­verð­ug­leiki SA „far­inn fyrir lít­ið“ og sam­komu­lag um ný og betri vinnu­brögð á íslenskum vinnu­mark­aði komið í „full­komið upp­nám.“ 

Lýstu yfir stuðn­ingi við starfs­fólk­ið 

Fyrir um mán­uði síðan fjöll­uðu bæði Lands­sam­band íslenzkra verzl­un­ar­manna og Starfs­greina­sam­band Íslands yfir stuðn­ingi við starfs­fólkið í kjara­deilu sinni. Skorað hefur verið á Rio Tinto að ljúka gerð kjara­samn­inga sem allra fyrst án þess að setja störf almennra starfs­manna í verk­töku, en fyr­ir­tækið hefur farið fram á að fá meiri heim­ildir til að auka verk­taka­starf­sem­i. 

Rann­veig Rist, for­stjóri Rio Tinto á Íslandi, hefur sent starfs­fólki tvö bréf þar sem slæmri stöðu fyr­ir­tæk­is­ins er lýst. „Staða á mörk­uðum er slæm og hefur versnað veru­lega frá ára­mót­um. Heims­mark­aðs­verð á áli hefur lækkað mikið og það á einnig við um mark­aðs­upp­bæt­ur, sem eru hluti af verð­inu sem við fáum fyrir álið. Eft­ir­spurn er langt undir áætl­un­um. Sam­an­lögð áhrif þessa á sölu­tekjur ISAL eru harka­leg. Og þar sem orku­verð ISAL er ekki lengur tengt við álverð þolum við lágt álverð miklu verr en áður,“ sagði hún meðal ann­ars í öðru bréf­in­u. 

Rann­veig hefur líka sagt að álverið í Straums­vík búi við mestu fjötra allra fyr­ir­tækja á Íslandi þegar kemur að verk­töku. Gylfi Ingv­ars­son, tals­maður verka­lýðs­fé­lag­anna í Straums­vík hefur hins vegar sagt að um áróður sé að ræða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None