Fjögur ráðuneyti hafa keypt ráðgjöf fyrir 184 milljónir

Forsætisráðuneytið hefur varið tæpum 90 milljónum króna í sérfræðiþjónustu undanfarin tvö ár, en fjármálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurninni enn.
Forsætisráðuneytið hefur varið tæpum 90 milljónum króna í sérfræðiþjónustu undanfarin tvö ár, en fjármálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurninni enn.
Auglýsing

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur keypt þjón­ustu vegna sér­fræð­i-, ráð­gjaf­ar- og kynn­ing­ar­starfa fyrir tæp­lega 90 millj­ónir króna í fyrra og það sem af er þessu ári. Þetta kemur fram í svari Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri-grænna. Katrín hefur lagt fram fyr­ir­spurnir til allra ráð­herra um útgjöld þeirra til þess­ara mála. 

Í svari Sig­mundar Dav­íðs kemur ekki fram hversu háar upp­hæðir voru greiddar hverjum og ein­um, en þar kemur fram að kostn­aður vegna kaupa á sér­fræði­þjón­ustu eins og ráðu­neytið túlkar hana hafi numið tæp­lega 62,8 millj­ónum króna í fyrra. Það sem af er þessu ári hefur hins vegar verið keypt þjón­usta fyrir lægri upp­hæð, eða 26,4 millj­ónir til loka októ­ber­mán­að­ar. 

Áber­andi á list­anum yfir keypta þjón­ustu eru verk­efni vegna verð­trygg­inga­mála og vinna fyrir stjórn­ar­skrár­nefnd. Hér má lesa list­ann í heild sinn­i. 

Auglýsing

Fjögur ráðu­neyti keypt fyrir 184 millj­ónir króna

Sem fyrr segir hefur Katrín óskað eftir þessum upp­lýs­ingum frá öllum ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Fjórir hafa hingað til skilað svörum: Sig­mund­ur, Sig­urður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra og Sig­rún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra. 

Sam­tals hafa því þjón­ustu­kaup ráðu­neyta þess­ara fjög­urra ráð­herra numið 184 millj­ónum króna frá upp­hafi síð­asta árs. 

Ráðu­neyti Ragn­heiðar Elínar hefur varið næst­mestum pen­ingum í ráð­gjöf, á eftir for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. 46,7 millj­ónir króna hafa farið í ráð­gjöf und­an­farin tvö ár, eins og sjá má hér. Ráðu­neyti Sig­rúnar Magn­ús­dóttur hefur hins vegar varið lægstum upp­hæðum í ráð­gjöf, eða tæp­lega 12,4 millj­ónum króna

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið hefur keypt ráð­gjöf fyrir rúmar 35 millj­ónir króna, og þar af fóru tæpar fimmtán millj­ónir í ráð­gjöf til þriggja lög­manns­stofa vegna frum­varps um stjórn fisk­veiða. Ráð­gjöf vegna frum­varps um veiði­gjöld er líka áber­andi á lista Sig­urðar Inga. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None