Sakar Pál Winkel um mannréttindabrot og lygar

olafur_13.jpg
Auglýsing

Ingi­björg Krist­jáns­dótt­ir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­son­ar, segir Pál Win­kel, for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­un­ar, brjóta á rétt­indum fanga eins og eig­in­manns henn­ar. Hún sakar hann einnig um að tjá sig opin­ber­lega um einka­mál útrás­ar­vík­inga sem sitja í fang­els­inu að Kvía­bryggju og fara með ósann­indi um þá. Þetta segir hún í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. 

„Fram­ganga Páls er sér­lega ósmekk­leg í ljósi þess að hann veit manna best að frels­is­svipt­ingin ein og sér er mönnum nógu erfið þó mann­rétt­indi þeirra séu ekki brotin sam­hliða“ segir Ingi­björg. Þetta hafi verið gert á kostnað skjól­stæð­inga Páls, „fanga sem eiga sér fáa málsvara í þjóð­fé­lagi hat­urs og hefnigirni, fanga sem Páll veit að er óheim­ilt að tjá sig í fjöl­miðl­um. Fang­arnir eru því varn­ar­lausir gegn aðför for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­un­ar.“ 

Ingi­björg segir að Páll hafi „ít­rekað veist ómak­lega að ákveðnum skjól­stæð­ingum sínum í fang­els­inu á Kví­a­bryggju. Hann brýtur á þeim sem ekki geta varið sig og hefur orðið upp­vís að því að fara með rangt mál. Einn þeirra sem Páll hefur brotið á er eig­in­maður minn, Ólafur Ólafs­son, sem afplánar þar dóm.“ 

Auglýsing

Ingi­björg ræðir um nýlegt mál þar sem komst í fjöl­miðla að Ólafur og fleiri fangar hygð­ust stunda nám í reið­mennsku. „Um er að ræða fjar­nám skipu­lagt af End­ur­mennt­un­ar­deild Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands. Verk­legi hluti náms­ins átti að fara fram á næsta bæ við Kvía­bryggju,“ segir Ingi­björg í grein­inn­i. 

Páll hafi hins vegar komið fram í fjöl­miðlum og sagst hafa stoppað námið af á síð­ustu stundu. Hann hafi meðal ann­ars farið í við­tal á RÚV „þar sem hann ræðir mjög frjáls­lega og allt að því háðs­lega um þetta sama mál og þessa sömu menn.“ Ingi­björg segir Pál ekki hafa nefnt nöfn skjól­stæð­inga sinna en eng­inn velk­ist í vafa um hverja hann hafi átt við, enda hafi hann sagt að mjög lít­ill hópur fanga hefði aðgengi að mörgum millj­ónum króna. Með þessum upp­lýs­ingum segir Ingi­björg að Páll hafi tjáð sig opin­ber­lega um einka­mál eig­in­manns hennar og sam­fanga hans. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None