Ólafur Ragnar segir skjöl Sádi-Araba um hann vera uppspuna og ýkjur

olafur_ragnar_sheik.jpg
Auglýsing

Íslend­ingar verða að hafa þor og kjark til að horfast í augu við þá stað­reynd að innan Íslam sé hópur byggður á öfga­kenndri túlkun þeirrar trú­ar. Þessi hópur „telur það rétt­læt­an­legt að drepa alla, hvort sem þeir eru Múhameðstrú­ar­menn eða Vest­ur­landa­búar eða Kristn­ir, sem ekki vilja gang­ast undir hin algjöru, óskorð­uðu, yfir­þyrm­andi lög íslam.“ 

Þetta sagði Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, í við­tali við Hall­grím Thor­steins­son á Rás 1 í morg­un. 

For­set­inn ræddi um hryðju­verkin í París og hryðju­verkaógn­ina í heim­in­um. „Hvort sem að frjáls­lynd­um öflum svoköll­uðum líkar það betur eða ver, þá er það núna orðið við­fangs­efni kjör­inna full­trúa víða í Evr­ópu, að koma í veg fyrir að venju­legt fólk sé drep­ið,“ sagði hann. 

Auglýsing

Ástæða til að hafa áhyggjur af afskiptum í trú­málum

Bent hefur verið á að for­seti Íslands hefur fundað með sendi­herra Sádi-­Ar­abíu hér á landi, og skjöl um fund þeirra voru birt á vef­síðu Wiki­leaks. Í skjöl­unum var sagt að for­seti Íslands hefði hrósað Sádi-­Ar­abíu og óskað eftir nán­ara sam­starfi ríkj­anna. Ólafur Ragnar segir að þessi skjöl, sem komu úr sendi­ráði Sádi-­Ar­ab­íu, hafi verið „meira og minna upp­spuni og ýkj­ur.“ 

Ólafur sagði í við­tal­inu að hann hefði sjálfur vakið athygli á boði sendi­herr­ans um fjár­hags­legan stuðn­ing Sádi-­Ar­abíu við trú­fé­lög á Íslandi. Þetta hafi komið fram á fundi hans með nýjum sendi­herra rík­is­ins og afskipti Sádi-­Araba af trú­málum á Íslandi sé áhyggju­efn­i. 

„Hverjir eru hags­munir og ástæður þess að það ríki sem hefur stutt - umfram öll önnur ríki - hið öfga­fulla íslam, er nú farið að hafa afskipti af því hér á Íslandi, af því hvernig trú er iðkuð hér á Íslandi? Og þegar menn spyrja: „Snertir þetta okkur eitt­hvað?“ Þá svara ég með þeim hætti að benda á þá stað­reynd að for­seti lýð­veld­is­ins, borg­ar­yf­ir­völd í Reykja­vík, for­ystu­menn þess­ara safn­aða á Íslandi, allir þessir aðilar hafa nú orðið á und­an­förnum mán­uðum með einum eða öðrum hætti þurft að hafa afskipti af því sem Sádi-­Ar­abía er að reyna að gera á Íslandi. Og það er nýr veru­leiki fyrir okkar litla land,“ sagði hann. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None