Þingmenn fjögurra flokka vilja kanna flutning innanlandsflugs til Keflavíkur

Flugvél
Auglýsing

Þing­menn úr öllum flokk­um, nema Sjálf­stæð­is­flokknum og Vinstri græn­um, vilja að kann­aðir verði kostir þess að flytja inn­an­lands­flug frá Reykja­vík­ur­flug­velli til Kefla­vík­ur­flug­vall­ar. Þetta kemur fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem þing­menn­irnir hafa lagt fram á Alþing­i. 

Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, Páll Valur Björns­son, Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, Birgitta Jóns­dótt­ir, Val­gerður Bjarna­dótt­ir, Róbert Mars­hall, Páll Jóhann Páls­son, Ásta Guð­rún Helga­dóttir og Sig­ríður Ingi­björg Inga­dóttir vilja að inn­an­rík­is­ráð­herra láti gera könnun á kost­unum við það að flytja flugið til Kefla­víkur og leggja mat á rekstr­ar­grund­völl og mögu­leg sókn­ar­færi Kefla­vík­ur­flug­vallar með til­liti til þró­un­ar­mögu­leika flug­vall­ar­ins og áhrifa á íbúa, ferða­þjón­ustu og atvinnu­líf á Suð­ur­nesj­um. Þau vilja að Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra skili skýrslu með nið­ur­stöð­unum á vor­þingi 2016. 

Þing­menn­irnir ræða í grein­ar­gerð með til­lög­unni skýrsl­una sem gerð var flug­vall­ar­kostum fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl, en Kefla­vík var ekki tekin með í þeirri athug­un. „Að mati flutn­ings­manna er nauð­syn­legt að meta Kefla­vík­ur­flug­völl á sama hátt og þá flug­vall­ar­kosti sem metnir voru í skýrslu stýri­hóps­ins. Lík­legt má telja að Kefla­vík­ur­flug­völlur kæmi vel út úr slíku mati með til­liti til þeirra þátta sem nefndir hafa verið hér að fram­an. Ljóst má vera að stofn­kostn­aður fyrir inn­­an­lands­flug á Kefla­vík­ur­flug­velli yrði lægri en á öðrum stöðum sem metnir voru. Kefla­vík­ur­flug­völlur er stærsti flug­völlur lands­ins og þar eru flestir þeir inn­viðir sem þarf fyrir rekstur inn­­an­lands­flugs. Meta þyrfti þó hvort rétt væri að byggja nýja flug­stöð sem sér­stak­lega mundi þjóna inn­­an­lands­flugi. Aðrir inn­við­ir, eins og flug­­braut­ir, eru til stað­ar. Þá má telja lík­legt að sam­legð­ar­á­hrif með milli­landa­flugi mundi gera það að verkum að rekstr­ar­kostn­aður yrði minni en á sér­stökum inn­­an­lands­flug­velli,“ segir í grein­ar­gerð­inn­i. 

Auglýsing

Í upp­haf­legu frétt­inni var sagt að þing­menn­irnir væru úr öllum flokkum nema Sjálf­stæð­is­flokki. Hið rétta er að eng­inn þing­maður úr Vinstri grænum er heldur meðal flutn­ings­manna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None