Tími er kominn til að huga að endurmati á fóstureyðingarlögunum á Íslandi og láta þau sjónarmið ráða för sem styðja nútímalegt sjálfræði kvenna. Þetta kemur fram í grein fjögurra reyndra heilbrigðisstarfsmanna í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.
Konur eru enn í þeirri aðstöðu formlega að ef þær vilja binda endi á meðgöngu þurfa tveir óskyldir aðilar, tveir læknar eða læknir og félagsráðgjafi, að samþykkja beiðni þeirra.
Þetta varð niðurstaðan í lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, sem voru sett árið 1975 á Alþingi og voru um margt framsýn lög. Lögin byggðu hins vegar á grunni laga um fóstureyðingar frá 1935, þar sem var ákvæði um að tveir læknar þyrftu að undirrita greinargerð áður en fóstureyðing mætti fara fram. Í lögunum árið 1975 var þessu breytt þannig að annar þessara tveggja óskyldu aðila mátti vera félagsráðgjafi þegar félagslegar ástæður væru að baki.
Það eru þau Jens A. Guðmundsson dósent og læknir á kvenna- og barnasviði Landspítalans, Ósk Ingvarsdóttir læknir á þróunarsviði heilsugæslunnar, Reynir Tómas Geirsson, prófessor og læknir á kvenna- og barnasviði og Sóley S. Bender prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ sem skrifa greinina og vekja athygli á þessu.
„„Fóstureyðing“ er því miður mjög gildishlaðið orð. „Þungunarrof“ lýsir betur því sem hér er af nauðsyn gert,“ segja þau meðal annars í greininni. Flestir séu sammála um að löggjöfin verndar heilsu og jafnvel líf kvenna og þungunarrofi fylgi lítil vandkvæði eða áhættur ef rétt sé staðið að.
„Sjálfsákvörðunarréttur fólks í sínum einkamálum endurspeglar viðhorf samtímans, og þar með til barneigna, fjölskyldumyndunar, kynhegðunar, hvers kyns læknismeðferðar, – jafnvel til lífsloka,“ skrifa þau jafnframt.
Fóstureyðingalögin og túlkun þeirra hafi á síðustu áratugum mátt fella að almennum viðhorfum um rétt konu til að ákveða hvenær barneign er tímabær og hægt hafi verið að finna nýjum aðferðum við þungunarrof með lyfjameðferð rými innan laganna. Framkvæmdin sé þannig í dag að mat konu á eigin aðstæðum og vilji hennar er virtur þegar óskað er eftir þungunarrofi. Formlega þarf samt ennþá samþykki annarra. Nú eru 40 ár liðin frá setningu laganna og Jens, Ósk, Reynir og Sóley segja að nú megi huga að endurmati.