Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að setja 504 íbúðir úr eignasafni sjóðsins í opið söluferli. Um er að ræða þriðjung þeirra íbúða sem nú eru í eigu sjóðsins. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að íbúðirnar séu um land allt og verða boðnar til sölu í 15 eignasöfnum. Verulegur hluti íbúðanna er í útleigu en hluti eignanna þarfnast lagfæringar.
Í tilkynningunni segir að sala eignanna sé í takti við markmið Íbúðalánasjóðs um að selja meirihluta fasteigna sjóðsins á þessu og næsta ári. Vonast sjóðurinn til að stuðla um leið að auknu framboði á íbúðarhúsnæði víða um land.
Um er að ræða eignasöfn sem eru misjöfn að stærð og gerð. Samsetning eigna í hverju safni miðast við að hagkvæmt geti verið að reka um þær leigufélög og eru eignir í hverju þeirra að jafnaði í sama byggðarlagi. Það er með vilja gert að hafa hvert leigusafn hóflegt að stærð til þess að fleiri fjárfestar geti boðið í þau. Fjárfestar mega þó bjóða í eins mörg söfn og þeir vilja.
Samkvæmt upplýsingum frá Íbúðalánasjóði mun söluferlið hefjast mánudaginn næstkomandi, eða 14. desember.Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs segir að vel hafi gengið að selja fasteignir sjóðsins til einstaklinga, leigufélaga og sveitafélaga að undanförnu. „Salan á þessum ríflega 500 fasteignum, sem nú verða seldar í opnu söluferli, er í samræmi við stefnu sjóðsins um að selja meirihluta fasteigna sjóðsins á þessu og næsta ári. Hlutverk Íbúðalánasjóðs er að lána til húsnæðiskaupa og stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði en ekki að reka fasteignir í lengri tíma. Staða Íbúðalánasjóðs hefur batnað mikið á síðustu misserum en um leið sjáum við að staðan á húsnæðismarkaði er erfið fyrir marga. Íbúðalánasjóður hefur reynt að mæta þessu, m.a. með umfangsmikilli ráðgjöf við fasteignakaupendur enda býr starfsfólk okkar yfir mikilli þekkingu á fasteignalánum.“