Innan við helmingur Íslendinga segist ánægður með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, samkvæmt nýrri könnun frá MMR. Á þessu kjörtímabili hefur ánægja með störf forsetans aldrei mælst lægri en nú, en einu sinni áður hefur hún mælst jafnlítil. 47,8% aðspurðra segjast ánægðir með störf forsetans, sem er sama hlutfall og í janúar á þessu ári. Könnuninni lauk þann 18. desember.
25,2 prósent eru óánægðir með störf forsetans samkvæmt könnuninni og 26,9 prósent segjast hvorki ánægðir né óánægðir með störf hans.
MMR kannar reglulega viðhorf til starfa forsetans. Í síðustu könnun á undan þessari, sem lauk 7. desember, sögðust 54,8 prósent vera ánægð með störf forsetans. Mest hefur ánægjan með forsetann farið upp í 63,6 prósent, í febrúar 2013, á þessu kjörtímabili. Mest hefur óánægjan farið í 30,1 prósent á þessu kjörtímabili, en það var í júlí 2013. Óánægjan var minnst skömmu áður, eða í maí síðastliðnum, 17,9 prósent.