Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri sjónvarps á RÚV, hefur beðist afsökunar á atriði í Stundarskaupinu, áramótaþætti Stundarinnar okkar. Þetta kemur fram á Facebook-síðu RÚV.
„Í Stundarskaupinu 2015 var atriði sem er ekki í samræmi við þá ritstjórnarlínu sem við höfum fylgt varðandi barna- og fjölskylduefni. Full ástæða er til að biðjast afsökunar á því. Ég og umsjónarmenn Stundarinnar okkar erum sammála um að barnaefni er ekki og á ekki að vera vettvangur pólitískrar ádeilu og það hefur ekki breyst,“ kemur fram í tilkynningu frá Skarphéðni.
Tveir þingmenn stjórnarflokkanna, Karl Garðarson frá Framsóknarflokki og Elín Hirst frá Sjálfstæðisflokki, skrifuðu grein í Fréttablaðið í dag þar sem þau gagnrýndu áramótaþátt Stundarinnar Okkar og það sem þau telja pólitíska slagsíðu RÚV harðlega. Bæði eru margreynd úr fjölmiðlum. Karl starfaði lengi sem fréttastjóri fréttastofu Stöðvar 2 og síðar sem ritstjóri Blaðsins og Elín var fréttastjóri á fréttastofu Stöðvar 2 og síðar á fréttastofu RÚV. Í grein sinni sögðu þau m.a.: „Í gegnum tíðina hafa loðað við Ríkisútvarpið kenningar um pólitíska slagsíðu í starfsemi þess. Það er óhætt að segja að þær hafi fengið byr undir báða vængi á gamlársdag. Í barnaþættinum Stundinni okkar gaf að sjá nokkur innslög sem lituðust mjög af pólitískum áróðri, en áttu á sama tíma á lítið sem ekkert skylt við barnaefni.[...] Í barnaþættinum mátti sjá forsætisráðherra og fjármálaráðherra þeysast um á gjöreyðingarskipinu „einkavæðarinn“ og tortíma bæði Landspítalanum og Ríkisútvarpinu, á milli þess sem þeir gerðu lítið úr heilbrigðisstarfsmönnum. Á öðrum stað í þættinum mátti heyra hvað Eyþór Arnalds hefði verið „leiðinlegur“ á árinu, en þannig vildi til að hann sat í nefnd sem skilaði af sér svartri skýrslu um fjárhag Ríkisútvarpsins í fyrra. Í barnatímanum var þeim skilaboðum komið áleiðis til barna um að ríkjandi valdhöfum væri ekki treystandi og að þeir vildu eyðileggja grunnstoðir samfélagsins.
Pólitískur áróður af hálfu Ríkisútvarpsins sem beinist að börnum er með öllu óásættanlegur, óháð því hvaða stjórnmálamenn- eða flokkar eru þar gerðir að bitbeini. Börn eru móttækileg fyrir skilaboðum sem þau hafa ekki fullar forsendur til að gaumgæfa á gagnrýninn hátt. Þetta endurspeglast til dæmis í því að ýmsar tegundir auglýsinga eru bannaðar á barnatíma, einmitt vegna þess hve móttækileg börn eru fyrir þeim.
Ríkisútvarpið rauf með þessu áróðursbragði sínu friðhelgi um pólitískt afskiptaleysi sitt gagnvart börnum, og brást um leið lagalegum og siðferðislegum skyldum sínum. Við köllum hér með eftir því að stjórnendur og starfsfólk Ríkisútvarpsins svari því með afgerandi hætti hvort þau telji ásættanlegt að pólitískum áróðri sé komið fyrir í barnaþáttum þess. Hlustendur Ríkisútvarpsins, og ekki síður foreldrar, verðskulda svar við því hver afstaða stofnunarinnar er til slíks áróðurs.“
Karl ítrekaði gagnrýni sína á Facebook-síðu sinni í dag. Stöðuuppfærslu hans er hægt að sjá hér að neðan.