Sigmundur svarar ekki hvort hann vill selja hlut ríkisins í Landsbankanum

Forsætisráðherra lagði áherslu á að það væri Bankasýslunnar að taka ákvörðun um að selja bankann. Bankasýslan segir hins vegar að það sé fjármálaráðherra að ákveða.

sigmundur david
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra svarar því ekki hvort hann styðji það að hlutur rík­is­ins í Lands­bank­anum verði seldur á yfir­stand­andi ári eða ekki eða hvort honum þyki það skyn­sam­leg hug­mynd. Þetta kom fram í svari hans við fyr­ir­spurn Helga Hjörvar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. 

Helgi spurði Sig­mund hvers vegna lægi „svona óskap­lega á að selja hlut rík­is­ins í Lands­bank­an­um.“ Það væri óút­skýrt en margt benti til þess að ríkið græddi á því að eiga hlut­inn áfram frekar en að selja hann. 

„Stutta svarið er: það liggur ekk­ert á að ­selja bank­ann fyrr en menn eru ásáttir um að það sé æski­leg­t ­fyrir eig­and­ann,“ sagði Sig­mundur Dav­íð. Hann lagði hins vegar áherslu á það að það væri ekki hann eða þingið sem myndi taka ákvörðun um sölu á Lands­bank­an­um, heldur kæmi það í hlut Banka­sýslu rík­is­ins. „Ég efast ekki um að Banka­sýslan muni meta það hvenær og með hvaða hætti æski­legt kann að vera að selja hlut í bank­an­um.“ 

Auglýsing

Helgi vitn­aði einnig til orða Frosta Sig­ur­jóns­son­ar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­manns efna­hags- og við­skipta­nefndar þings­ins, um að bank­inn eigi að vera sam­fé­lags­banki og ekki ætti að selja hlut rík­is­ins í hon­um, og spurði hvort for­sæt­is­ráð­herra væri á sömu skoðun og Frosti. Því svar­aði Sig­mundur Davíð ekki, en lagði áfram áherslu á það að hann myndi ekki koma til með að selja hlut­inn í bank­an­um, heldur Banka­sýsl­an. 

Sam­fé­lags­banki sam­þykktur af flokks­þingi Fram­sóknar

Sam­kvæmt sam­þykkt flokks­þings Fram­sókn­ar­flokks­ins frá því í apríl á bank­inn að vera sam­fé­lags­banki. „Lands­bank­inn verði sam­fé­lags­banki í eigu þjóð­ar­innar með það mark­miði að þjóna sam­fé­lag­inu í stað þess að hámarka hagn­að. Til að bregð­ast við fákeppni á banka­mark­aði er nauð­syn­legt að Lands­bank­inn hafi þann til­gang að bjóða góða þjón­ustu á bestu kjörum til að efla sam­keppni í banka­þjón­ustu á lands­vísu. Lands­bank­inn verði bak­hjarl spari­sjóða­kerf­is­ins.“

Sig­mundur Davíð hefur áður sagt að vert sé að skoða hug­myndir Frosta. 

Banka­sýslan telur skil­yrði til staðar til að hefja sölu

Það er hins vegar þannig að stjórn­völd taka ákvörðun um hvenær hefja eigi sölu­ferlið, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Banka­sýsl­unni frá því fyrr í þessum mán­uði. Þá sendi stofn­unin frá sér stöðu­skýrslu um sölu­ferlið þann 8. jan­úar síð­ast­lið­inn, þar sem fram kom að hún telur að þau skil­yrði sem stofn­unin setur fyrir því að hefja sölu­ferli á eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum séu til stað­ar. Það sé ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra að hefja sölu­ferl­ið. Í kjöl­far stöðu­skýrsl­unnar ætlar Banka­sýslan að óska eftir yfir­lýs­ingum um áhuga af hálfu aðila sem vilja starfa með stofn­un­inni sem ráð­gjafar í fyr­ir­hug­uðu sölu­ferli. Banka­sýslan býst við því að hægt verði að ljúka sölu á allt að 28,2 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á síð­ari hluta árs­ins ef ákvörðun verður tekin í vor. 

Heim­ild til þess að selja hlut af hluta rík­is­ins í Lands­bank­anum hefur verið í lögum frá árinu 2011. Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016 kemur fram að ríkið geri ráð fyrir því að um 71 millj­arður króna fáist fyrir 30 pró­senta hlut og að ágóð­inn verði greiddur inn á skulda­bréf sem voru gefin út til að fjár­magna fallnar fjár­mála­stofn­anir árið 2008.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None