Plain Vanilla fær tæpan milljarð í fjármagn frá bandaríska tölvuleikjaframleiðandanum Glu Mobile Inc. Fyrirtækið sérhæfir sig í að framleiða leiki fyrir snjallsíma og spjaldtölvur og ætlar að fjárfesta í Plain Vanilla fyrir allt að 7,5 milljónir Bandaríkjadala sem samsvarar um 970 milljónum króna.
Niccolo de Masi, forstjóri Glu, tekur sæti í stjórn QuizUp en þar að auki öðlast Glu kauprétt á öllu hlutafé Plain Vanilla á fyrirfram umsömdu verði. Kauprétturinn gildir í 15 mánuði frá fjárfestingunni.
Vill skoða kaup á Plain Vanilla í heilu lagi
Haft er eftir de Masi í tilkynningu sem send var fjölmiðlum í dag að hann hlakki til að taka sæti í stjórn QuizUp.
„Til viðbótar við þau tækifæri sem felast í kynningarsamstarfi á milli leikja Glu og sérhæfðra áhugahópa innan QuizUp, þá erum við spennt að sjá þennan spennandi, nýja spurningaþátt sem verður til með samvinnu Plain Vanilla og NBC," segir hann. „Ef samstarfið verður farsælt og tekjur af QuizUp halda áfram að aukast þá mun Glu skoða að nýta þann rétt sem við höfum til að kaupa fyrirtækið í heilu lagi.“
Fyrirtækin tvö munu meðal annars leggja áherslu á þróun QuizUp sjónvarpsþáttarins, sem tilkynnt var um síðasta haust. Stærsta sjónvarpsstöð Bandaríkjanna, NBC, hefur ákveðið að framleiða 10 þátta seríu sem byggir á QuizUp. Í kjölfarið keypti ITV fjölmiðlarisinn, sem rekur hátt í tíu sjónvarpsstöðvar í Bretlandi, réttinn að QuizUp spurningaþættinum þar í landi.
Vonir bundnar við sjónvarpið
Standa vonir til þess að QuizUp spurningaþáttur verði sýndur um allan heim en í honum etja þátttakendur í upptökuveri kappi við sjónvarpsáhorfendur sem sitja heima í stofu og eiga sigurvegarar möguleika á að vinna sér inn peningaupphæðir.
Plain Vanilla framleiðir spurningaleikinn QuizUp en síðan honum var hleypt af stokkunum haustið 2013 hafa um 40 milljónir notenda skráð sig til leiks og eyða notendur í dag að jafnaði um 30 mínútum á dag í leiknum.
Glu Mobile Inc er skráð í bandarísku NASDAQ kauphöllina en stærstu hluthafar Glu eru ýmsir fjárfestingarsjóðir. Kínverska fyrirtækið Tencent, sem er stærsta netfyrirtæki Asíu og það fjórða stærsta í heimi, keypti 15% hlut í Glu fyrir um 15 milljarða króna í apríl í fyrra. En Tencent er einnig á meðal stærstu hluthafa í Plain Vanilla.