Formaðurinn stóð í vegi fyrir frumvarpinu

Ekki er einhugur innan Samfylkingar um leiðir að afnámi verðtryggingar. Frumvarp þess efnis hefði löngu verið komið fram ef ekki hefði verið fyrir andstöðu formannsins, segir þingmaður flokksins. Varaformaður segir stefnu flokksins ekki óskýra.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Auglýsing

Þing­menn Sam­fylk­ingar verða að íhuga hvers vegna kjós­endur yfir­gáfu flokk­inn. Stefna flokks­ins varð­andi afnám verð­trygg­ingar gæti verið liður í því. Þetta segir Sig­ríður Ingi­björg Inga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ingar og annar flutn­ings­manna frum­varps um afnám verð­trygg­ingar sem hún lagði fram í gær ásamt Helga Hjörvari þing­flokks­for­manni.

Sig­ríður Ingi­björg segir að eftir miklar og langar sam­ræður um málið innan þing­flokks­ins hafi þau ákveðið að leggja frum­varpið fram.

„Málið væri löngu komið fram ef ekki hefði verið fyrir and­stöðu for­manns­ins,” segir hún. „En nú er þetta umdeilda mál komið upp á yfir­borðið og við Helgi að bjóða upp á tæki­færi til umræðu um það.”

Auglýsing

Sig­ríður Ingi­björg segir umræð­una um verð­trygg­ing­una lengi hafa staðið yfir innan flokks­ins og að ekki hafi verið ein­hugur um mál­ið. Nú eftir jól hafi hún og Helgi fengið leyfi til að flytja frum­varp­ið, sem þau og gerðu í gær.

Hvorki Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, né Katrín Júl­í­us­dóttir vara­for­maður segj­ast munu styðja frum­varp­ið.

Árni Páll Árnason Árni Páll sagði í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að stefna Sam­fylk­ing­ar­innar væri skýr. Flokk­ur­inn vilji afnema verð­trygg­ingu með því að taka upp annan gjald­miðil og að auka vægi óverð­tryggða lána, en ekki afnema verð­trygg­ingu núna.

„Þessir tveir þing­menn eru þeirrar skoð­unar og það er eðli­legt að það rúmist ólíkar skoð­anir innan flokks­ins,“ sagði hann.

Ósam­mála um aðferð­ir 

Sig­ríður Ingi­björg tekur undir að ein­hugur sé innan flokks­ins um afnám verð­trygg­ing­ar, bara ekki leið­ina að henni. Hún segir að þing­menn flokks­ins verði að spyrja sig hvers vegna kjós­endur hafi yfir­gefið Sam­fylk­ing­ing­una, sem er að ítrekað að mæl­ast með mjög lítið fylgi í skoð­ana­könn­un­um.

„Frum­varpið er lagt fram af heilum hug og er yfir­lýs­ing okkar Helga um skoðun okkar í þessu máli. Sam­fylk­ingin á að vera opinn flokkur sem sé óhræddur við að taka á þessu grund­vall­ar­at­rið­i,” segir hún. Aðspurð hvort þetta geri stefnu flokks­ins í mál­inu ekki óskýra gagn­vart kjós­endum telur hún svo ekki vera.

„Sam­fylk­ingin verður að huga að því að kjós­endur mis­skilji ekki stefnu henn­ar. Og ég held að mörgum af okkar fyrri kjós­endum hafi ekki hugn­ast stefna okkar í þessum mál­u­m.”

Allir þing­menn hafi rétt á sinni skoðun

Katrín Júl­í­us­dótt­ir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar, tekur undir orð Sig­ríðar Ingi­bjargar um að ekki sé ein­hugur innan flokks­ins um hvaða leið eigi að fara að afnámi verð­trygg­ingar þó að allir séu sam­mála um að afnema hana.

Katrín Júlíusdóttir„En við erum eini flokk­ur­inn sem hefur þó lagt raun­veru­lega af stað í að afnema hana, með við­ræðum við ESB og upp­töku evr­u,” segir Katrín. „Síðan deilum við um það hvort það dugi að taka á mein­inu sem er und­ir­liggj­andi eða ekki.”

Hún segir þing­menn hafa fullan rétt á að leggja fram alls kyns mál. Þetta til­tekna mál hafi verið rætt í langan tíma. Frum­varpið geri stefnu flokks­ins ekki óskýra, heldur séu þetta bara ólík sjón­ar­mið.

„Þau ákveða að gera þetta og það er þeirra rétt­ur,” segir hún. „Þau geta alveg lagt þetta fram með þessum hætti og standa fyrir það sjálf.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None