Kári sáttur með árangurinn og skrifar gagnrýni Sjálfstæðismanna á hvatvísi

Yfir 36.000 manns hafa skrifað undir undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar um endurreisn heilbrigðiskerfisins. Kári gefur lítið fyrir gagnrýni Sjálfstæðismanna á söfnunina og skrifar ummæli þeirra á hvatvísi.

Kári Stefánsson
Auglýsing

Meira en 36.000 manns hafa sett nafn sitt við und­ir­skrift­ar­söfnun Kára Stef­áns­son­ar, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Söfn­unin hefur verið aðgengi­leg á net­inu í rúma tvo sól­ar­hringa, eða síðan um miðjan dag á föstu­dag. 

Kári er ánægður með fjöld­ann. 

„Þetta er býsna gott á ekki lengri tíma. Ég væri ekk­ert hissa á því að við værum komin í 50 þús­und um miðja vik­una.” segir hann í sam­tali við Kjarn­ann. „Því ég held að þetta sé almennt það sem fólk vill. Gera menn sér virki­lega ekki grein fyrir því að við erum í raun að fall­ast á að fólk þjá­ist meira hér en ann­ars staðar með því að fjár­magna ekki heil­brigð­is­kerfið eins og nauð­syn­legt er?”  

Auglýsing

Sjálf­stæð­is­menn gagn­rýna Kára

Þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, þeir Jón Gunn­ars­son og Brynjar Níels­son, hafa gagn­rýnt Kára fyr­ir und­ir­skrift­ar­söfn­un­ina og farið fram á að hann útskýri hvar eigi að skera niður á móti ef 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu eigi að fara inn í rekstur heil­brigð­is­kerf­is­ins, en ekki 8,7 pró­sent eins og nú er. 

Kári gefur lítið fyrir þessa gagn­rýn­i. 

„Heil­brigð­is­kerfið er það kerfi sem við notum til að hlúa að þeim veiku í okkar sam­fé­lagi. Og með því að fjár­magna það eins og við höfum verið að gera erum við að fall­ast á að lasnir og meiddir eigi að þjást meira en nauð­syn­legt er,” segir hann. „Mín til­laga er sú að fjár­magna heil­brigð­is­kerfið fyrst, áður en við förum að skipta kök­unni á milli ann­arra mála­flokka. Þessir tveir þing­menn virð­ast vera hrædd­ari við skatta­hækk­anir en þján­ingar og dauða.” 

Kári skrifar ummæli Jóns og Brynjars á hvat­vísi og von­ast til þess að ummæli þeirra hafi ekki unnið flokki þeirra of miklu tjóni. Hann ætlar að svara gagn­rýni þeirra skrif­lega á Face­book í kvöld. 

Und­ir­skrift­ar­safn­anir hafa orð­ið æ algeng­ari hér á landi und­an­farin ár, sér­stak­lega eftir efna­hags­hrunið með til­komu nets­ins og sam­fé­lags­miðla. End­ur­reisn Kára Stef­áns­sonar er sú fyrsta á þessu ári. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None