Glitnir hefur afhent ríkinu allt stöðugleikaframlag slitabúsins. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag og er haft eftir Ingólfi Haukssyni, framkvæmdastjóra Glitnis.
Hann segir að frá málinu hafi verið gengið í vikunni. Það þýðir að Íslandsbanki er að fullu kominn í ríkiseigu. Ingólfur segir að meðal eigna sem hafi verið afhentar séu eignarhlutir í ýmsum íslenskum fyrirtækjum. Þar á meðal hlutir í Sjóvá, Reitum og lítill hlutur í Eimskip. Glitnir átti 13,67 prósenta eignarhlut í Sjóvá í gegnum félagið SAT eignarhaldsfélag hf. sem er tæplega 2,5 milljarða króna virði. Auk þess átti Glitnir 6,26 prósenta eignarhlut í Reitum sem metinn er á 3,8 milljarða króna
Stjórnvöld meta 95 prósenta eignarhlutinn í Íslandsbanka sem Glitnir afhenti á 185 milljarða króna og stöðugleikaframlag Glitnis í heild 229 milljarða króna.
Samkvæmt svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins tekur Seðlabankinn við eignarhlutum sem slitabúin greiða ríkinu. Á Alþingi liggur fyrir lagafrumvarp þar sem kveðið er á um að sérstakt eignaumsýslufélag verði stofnað um stöðugleikaframlögin í umsjón Seðlabankans.
Lán Glitnis til Reykjanesbæjar er meðal þeirra eigna sem afhentar hafa verið ríkinu.Fjármála- og efnahagsráðuneytið vildi ekki upplýsa um hver aðkoma ríkisins að viðræðum Reykjanesbæjar við kröfuhafa yrði í kjölfarið. Ríkið hefur verið óbeinn aðili að viðræðunum þar sem Landsbankinn er einn kröfuhafa. Þá skuldar Reykjanesbær Íslandsbanka einnig talsverða fjármuni. Á hluthafafundi í Glitnis í gær voru Norðmaðurinn Tom Grøndahl, Daninn Steen Parsholt og Bretinn Mike Wheeler kjörnir í stjórn eignaumsýslufélagsins. Þeir voru þeir einu sem voru í framboði.