Segir rekstrarhagnað 365 hafa verið nálægt milljarði árið 2015

365 miðlar juku rekstrarafkomu sína um 53 prósent á milli ára, samkvæmt óendurskoðuðum tölum fyrirtækisins. Forstjórinn segir 365 í sóknarhug. Fjármálastjórinn hætti í síðustu viku eftir fimm mánuði í starfi.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365
Auglýsing

Rekstr­ar­hagn­aður fjöl­miðla­sam­steypunnar 365 var nálægt einum millj­arð­i króna á árinu 2015 fyrir fjár­magns­kostn­að, afskriftir og skatta, sam­kvæmt ó­end­ur­skoð­unum rekstr­ar­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta segir Sævar Freyr ­Þrá­ins­son, for­stjóri 365 og starf­andi fjár­mála­stjóri. Til­kynnt var um þess­ar ­rekstr­ar­tölur á starfs­manna­fundi í gær­morgun klukkan 11.

Á árinu 2014 tap­aði 365 sam­tals 1,4 millj­arði króna þrátt fyr­ir­ að 445 millj­ónir króna hefðu verið greiddir inn sem nýtt hluta­fé. Velta ­fyr­ir­tæk­is­ins dróst saman um tæp­lega 400 millj­ónir króna á því ári og skuld­ir þess hækk­uðu um tæpan millj­arð króna. Þær stóðu í 8,9 millj­örðum króna í árs­lok þess árs. Tapið hefði orðið hærra ef ekki hefði verið fyrir upp­safnað skatta­legt tap því tap 365 fyrir tekju­skatt nam rúm­lega 1,6 millj­arði króna. Það er svipuð upp­hæð og 365 hagn­að­ist sam­tals um síð­ustu fjögur árin á und­an. Sam­kvæmt árs­reikn­ingi árs­ins 2015 átti enn eftir að færa end­ur­á­lagn­ingu skatta upp á 372 millj­ónir króna í rekstr­ar­reikn­ing 365, en sú end­ur­á­lagn­ing var stað­fest af yfir­skatta­nefnd í júlí 2015.

Því er um mik­inn við­snún­ing að ræða á rekstri 365 sam­kvæmt þeim tölum sem Sævar kynnti á starfs­manna­fund­inum í gær­morg­un.

Auglýsing

Fjár­mála­stjór­inn hætti eftir fimm mán­uði í starfi

365 aug­lýsti eft­ir nýjum fjár­mála­stjóra í fjöl­miðlum um liðna helgi. Guð­munda Ósk Krist­jáns­dótt­ir hætti sem fjár­mála­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í síð­ustu viku eftir ein­ungis fimm ­mán­uði í starfi. Hún kom til 365 frá Lands­bank­anum og fór aftur þang­að, að sögn ­Sæv­ar­s. „Hún ákvað að fjár­mála­geir­inn heill­aði og fór aftur til bank­ans.” Sæv­ar sinnir starf­inu þar til nýr fjár­mála­stjóri hefur verið ráð­inn. 

365 fór í útboð með öll banka­við­skipti sín í fyrra­haust, en ­fyr­ir­tækið hafði verið í þjón­ustu hjá Lands­bank­anum árum sam­an. Í kjöl­far út­boðs­ins ákvað 365 að ganga til samn­inga við Arion banka sem nú er við­skipta­banki fyr­ir­tæk­is­ins. Í til­kynn­ingu vegna þessa, sem send var út í nóv­em­ber 2015, sagði að útboð á banka­við­skiptum væri liður í því að „und­ir­búa félagið betur fyrir mögu­lega skrán­ingu félags­ins í Kaup­höll Íslands“.

Engar upp­sagnir standa fyrir dyrum

Sævar segir rekstur 365 ganga vel og að hagn­aður fyr­ir­ fjár­magns­kostn­að, afskriftir og skatta (EBIT­DA) hefði auk­ist um 53 pró­sent frá­ ­fyrra ári þegar miðað sé við reglu­lega starf­semi, þó töl­urnar séu ó­end­ur­skoð­að­ar­. „­Rekst­ur­inn er að þróast í rétta átt og und­ir­liggj­andi starf­semi er að styrkj­ast. Við erum mjög ánægð ­með þró­un­ina núna. Við ætlum okkur þó alltaf eitt­hvað meira, en þetta er stað­an hjá okkur nún­a.” 

12 starfs­mönnum var sagt upp hjá 365 í októ­ber síð­ast­liðn­um, níu karl­mönnum og þremur kon­um. Sævar segir að erf­iðar aðgerðir séu óum­flýj­an­leg­ar þegar bæta eigi rekst­ur. „Maður er að reyna að bæta rekstur og bæta upp­lifun við­skipta­vina heima í stofu. Það hefur í för með sér að stundum þarf að taka erf­iðar ákvarð­an­ir,” segir hann. Aðspurður hvort upp­sögnum sé þá lokið í ljósi bættrar rekstr­ar­stöðu segir hann: „Það er ekk­ert sem stendur fyrir dyrum á þess­ari stundu. Við erum í sókn­ar­hug.” 

Kjarn­inn greindi árs­reikn­ing 365 þegar hann var birt­ur op­in­ber­lega í nóv­em­ber 2015. Hægt er að lesa þá grein­ingu hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None