Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri RÚV, sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu þar sem hún hafnar ummælum Eggerts Skúlasonar, ritstjóra DV, í leiðara 2. febrúar. Eggert gaf í skyn í leiðaranum að Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjórinn í Reykjavík, hefði verið blekkt í viðtal fyrir hádegisfréttir á RÚV árið 2014.
Rakel segir fráleitt að halda því fram að fréttastofa Ríkisútvarpsins hafi á nokkurn hátt beitt blekkingum eða viðhaft óeðlileg vinnubrögð. Slíkar ásakanir standist ekki skoðun.
„Ásakanir ritstjórans snúast um viðtal við lögreglustjórann í Reykjavík sem spilað var í hádegisfréttum laugardaginn 22. nóvember 2014 en viðtalið var tekið upp í hljóðstofu Ríkisútvarpsins í gegnum síma. Öll hljóðrituð viðtöl sem fréttastofa RÚV tekur þurfa að fara fram í gegnum hljóðstofu (stúdíó með tæknimanni) því ekki er til búnaður á fréttastofunni sem gerir fréttamönnum kleift að hljóðrita símtöl í borðsíma og fréttareglur RÚV heimila ekki notkun á hljóðupptöku úr farsíma sem viðmælanda er ekki kunnugt um. Þá hefur það aldrei tíðkast, jafnvel þó að viðmælanda væri kunnugt um upptöku á farsíma og samþykki lægi fyrir. Ljósvakamiðill viðhefur önnur vinnubrögð en t.d. dagblöð hvað þetta varðar því upptakan þarf að vera úsendingarhæf í útvarpi eða sjónvarpi og því er hljóðver alltaf notað.
Í þessu umrædda viðtali hafði fréttamaðurinn rætt við lögreglustjórann í farsíma sinn stuttu áður og þegar samþykki fyrir viðtali lá fyrir fór fréttamaðurinn í hljóðstofu og þaðan var hringt í lögreglustjórann, venju samkvæmt. Upptakan er til í gögnum fréttastofunnar í heild sinni, rúmar 23 mínútur. Á upptökunni segir fréttamaðurinn í lok viðtals að nú ætli hann að hlusta á viðtalið og vera í sambandi enda hafði lögreglustjórinn sett það sem skilyrði fyrir veitingu viðtals að hún fengi að vita hvaða hlutar þess yrðu notaðir í fréttina. Áður en fréttin var birt hringdi fréttamaðurinn í lögreglustjórann og las upp handritið.
Sú ályktun ritstjóra DV um að lögreglustjórinn hafi ekki vitað að hún væri í viðtali eða að hljóðupptaka væri í gangi er því röng. Það staðfestir upptakan sjálf. Þá hefur fréttastofu aldrei borist kvörtun eða athugasemd frá lögreglustjóranum sjálfum, hvorki fyrir 14 mánuðum þegar viðtalið var birt né núna eftir að ritstjóri DV steig fram á ritvöllinn með sína túlkun á samskiptum fréttastofunnar og lögreglustjórans. Fréttastofa hefur boðið lögreglustjóranum að koma og hlusta á upptökuna og það boð stendur.
Með vísan í ofangreinda málavexti er fráleitt að halda því fram að fréttastofa Ríkisútvarpsins hafi á nokkurn hátt beitt blekkingum eða viðhaft óeðlileg vinnubrögð. Slíkar ásakanir standast einfaldlega ekki skoðun,“ segir Rakel í tilkynningu.
Þess ber að geta að umræddur fréttamaður vinnur nú á ritstjórn Kjarnans.