Þjóðminjasafn og Minjastofnun sameinist í eitt

Til stendur að sameina Þjóðminjasafn Íslands og Minjastofnun Íslands. Forsætisráðuneytið tilkynnir þetta formlega á næstunni. Boðað hefur verið til starfsmannafunda hjá báðum stofnunum eftir hádegi. Fornleifafræðasamfélagið gagnrýnir sameininguna.

Þjóðminjasafn Íslands
Auglýsing

Til stendur að sam­eina Þjóð­minja­safnið og Minja­stofnun Íslands í eitt. For­sæt­is­ráðu­neytið til­kynnir þetta form­lega í dag eða á næstu dög­um. 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra setti saman stýri­hóp síð­asta haust til þess að kanna kosti og galla sam­ein­ing­ar­innar og hefur sá hópur nú kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að æski­legt sé að sam­eina stofn­an­irn­ar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Capacent gerði einnig fýsi­leika­könnun og ræddi við hags­muna­að­ila. 

Minja­stofnun Íslands er þriggja ára gömul stofn­un, en hún varð til þann 1. jan­úar 2013 þegar Forn­leifa­vernd rík­is­ins og Húsa­frið­un­ar­nefnd sam­ein­að­ist í eitt. 

Auglýsing

Starfs­manna­fundir haldnir í dag

For­stöðu­menn Þjóð­minja­safns­ins og Minja­stofn­unar eru boð­aðir á fund í ráðu­neyt­inu í hádeg­inu í dag. Fundað verður með öllum starfs­mönnum Þjóð­minja­safns í dag klukkan 14 og Minja­stofn­unar klukkan 15, þar sem staðan í mál­inu verður til­kynnt. 

Mar­grét Hall­gríms­dótt­ir, for­stöðu­maður Þjóð­minja­safns Íslands, und­ir­strikar að hún hafi enn ekki fengið form­lega til­kynn­ingu um mál­ið, en sé á leið á fund í ráðu­neyt­inu í hádeg­inu. Hún er á þeirri skoðun að það sé rétt að skoða sam­ein­ingu og telur margt benda til þess að hún efli starf­sem­ina. 

„Ég fagna líka hversu fag­lega hefur verið staðið að þessu ferli. Þetta er ekki skyndi­á­kvörðun og hefur verið í umræð­unni síðan 2001,” segir hún. „Ég styð þetta heils­hugar út frá mál­efn­in­u.” Mar­grét segir að talað hafi verið um að með sam­ein­ingu eigi ekki að þurfa að koma til upp­sagna meðal starfs­fólks. 

Kristín Huld Sig­urð­ar­dótt­ir, for­stöðu­maður Minja­stofn­unar Íslands, vildi ekki tjá sig um málið fyrr en fund­ur­inn væri afstað­inn með ráðu­neyt­in­u. 

Fræði­geir­inn mót­mælir harð­lega

For­leifa­fræð­inga­fé­lag Íslands er alfarið á móti sam­ein­ing­unni og lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þess. Sam­ein­ingin auki við enn meiri óstöð­ug­leika á sviði menn­ing­ar­mála í land­in­u. 

Á heima­síðu félags­ins kemur fram að for­mað­ur­inn, Sól­rún Inga Trausta­dótt­ir, hafi verið kölluð á fund Capacent í byrjun febr­ú­ar, ásamt fleiri for­svars­mönnum úr fræði­geir­an­um, þar sem kostir og gallar sam­ein­ing­ar­innar voru rædd­ir. Auk Sól­rúnar voru á fund­inum Bjarni F. Ein­ars­son, frá Forn­leifa­fræði­stof­unni, Albína Páls­dótt­ir, frá Íslenskum forn­leifa­rann­sókn­um, Elín Ósk Hreið­ars­dótt­ir, frá Forn­leifa­stofnun Íslands, Berg­sveinn Þórs­son, for­maður Félags íslenskra safna og safn­manna, Ágústa Krist­ó­fers­dótt­ir, for­stöðu­maður Hafn­ar­borgar og Þóra Björk Ólafs­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Safna­ráðs. Var það ein­róma álit fund­ar­ins að sam­ein­ing stofn­an­anna væri slæm hug­mynd, segir á heima­síðu For­leifa­fé­lags­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None