Alþingi samþykkir einróma lengra fæðingarorlof vegna andvana fæðinga

kvennadeild landspítali
Auglýsing

Báðir for­eldrar barna sem fæð­ast and­vana fá þriggja mán­aða fæð­ing­ar­or­lof frá og með deg­inum í dag. Alþingi sam­þykkti lög þess efnis með 45 ein­róma atkvæðum á þingi fyrr í dag. 

Hingað til hafa for­eldrar átt sam­eig­in­legan rétt til þriggja mán­aða orlofs ef and­vana­fæð­ing á sér stað eftir 22 vikna með­göngu. Ein­róma stuðn­ingur var við það að lengja rétt for­eldra þannig að hvort um sig fá sjálf­stæðan rétt til þriggja mán­aða fæð­ing­ar­or­lofs. Gamla fyr­ir­komu­lagið hafi ekki veitt for­eldrum nægi­legt svig­rúm til þess að jafna sig eftir missi. 

Frum­varp um breyt­ingar á lög­unum var lagt fram í haust í annað skipti, en Páll Valur Björns­son, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar, var fyrsti flutn­ings­maður þess. Auk hans voru flutn­ings­menn hinir fimm þing­menn Bjartrar fram­tíð­ar, Katrín Jak­obs­dóttir for­maður VG, Helgi Hrafn Gunn­ars­son kafteinn Pírata og Össur Skarp­héð­ins­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Í frum­varp­inu var gert ráð fyrir því að fæð­ing­ar­or­lofið yrði lengt í fullt fæð­ing­ar­or­lof, og var sagt að varla væri hægt að halda því fram að munur sé á því að eign­ast and­vana barn eða að missa barn skömmu eftir fæð­ing­u. Ef barn deyr skömmu eftir fæð­ingu fá for­eldrar fullt fæð­ing­ar­or­lof, sem er þrír mán­uðir hvort for­eldri um sig og þrír mán­uðir sem eru sam­eig­in­leg­ir. „Í báðum til­vikum þurfa for­eldr­arnir að takast á við sam­bæri­legt sorg­ar­ferli, til við­bótar því álagi sem fylgir fæð­ingu barns. Hið and­lega bata­ferli er af sama meiði hvort sem barnið lést í móð­ur­kviði eða stuttu eftir fæð­ing­u,“ sagði í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Auglýsing

Við með­ferð máls­ins hjá vel­ferð­ar­nefnd sam­ein­að­ist öll nefndin um að gera breyt­ingar þannig að hvort for­eldri um sig fái þriggja mán­aða orlof. Nefndin féllst á að það væri ekki heppi­legt að það væri sex mán­aða munur á orlof­inu eftir því hvort barn deyr rétt fyrir eða eftir fæð­ing­u. 

Páll Valur Björns­son var einnig fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem var sam­þykkt á þingi í dag, en hún kveður á um að 20. nóv­em­ber hvers árs verði helg­aður fræðslu um mann­rétt­indi barna í skólum lands­ins. Talið er að það sé eins­dæmi að tvö mál þing­manns minni­hluta fáist sam­þykkt á sama deg­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None