Forysta stjórnarandstöðunnar ræðir vantrauststillögu á morgun

Forysta stjórnaranstöðunnar fundar um stöðu forsætisráðherra og mögulega vantrauststillögu. Formaður BF segir stöðuna fordæmalausa. Píratar eru ekki tilbúnir í kosningar 2016 en formaðurinn segir að stundum þurfi að hugsa stærra en um sjálfan sig.

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna, ásamt þingflokksformönnum, ætla að stilla saman strengi sína á morgun og ræða möguleikann á vantrauststillögu á Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna, ásamt þingflokksformönnum, ætla að stilla saman strengi sína á morgun og ræða möguleikann á vantrauststillögu á Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Auglýsing

For­menn og þing­flokks­for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna ætla að funda klukkan 14 á morgun og ræða mögu­lega van­traust­s­til­lögu á Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og stöðu hans gagn­vart þing­inu vegna Wintris-­máls­ins.

For­menn­irn­ir, þau Árni Páll Árna­son Sam­fylk­ingu, Birgitta Jóns­dóttir Píröt­um, Katrín Jak­obs­dótt­ir, Vinstri græn­um, og Ótt­arr Proppé, Bjartri fram­tíð, segj­ast í sam­tali við Kjarn­ann ætla að stilla saman strengi sína og ræða næstu skref í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin með for­sæt­is­rað­herra.

For­dæma­laust ástand

Ótt­arr segir ástandið sem upp er komið vera algjör­lega for­dæma­laust.

Auglýsing

„Ég hall­ast frekar að því að það sé til­efni til van­trausts,” segir hann. „Síðan hefur for­sæt­is­ráð­herra sjálfur kallað eftir því, sem er svo­lítið óvenju­legt, en sýnir að minnsta kosti að fólk er að velta þessu fyrir sér alls stað­ar.”

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, segir að nauð­syn­legt sé að stilla saman strengi sína áður en þing komi saman á mánu­dag.

„Það hefur bæði verið umræða um van­traust­s­til­lögu og líka hvaða upp­lýs­ingar við viljum fá fram á þing­inu um þetta mál,” segir hún. „Trú­verð­ug­leiki for­sæt­is­ráð­herra hefur skað­ast mjög mikið og þau svör sem hann hefur gefið hingað til eru ekki full­nægj­andi. Hann kaus að upp­lýsa þingið ekki um málið og það verður að ræða.”

„Stundum verður maður að hugsa stærra"

Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Pírata, segir að aðal umræðu­efnið á fund­inum á morgun verði Sig­mundur Davíð og hans við­brögð. Píratar hafi mik­inn áhuga á að leggja fram van­traust­s­til­lögu.

„Þetta mál er allt mjög sér­stakt. Færsla eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra á Face­book, sem talar um Gróu á leiti, sem kemur svo í ljós að eru rann­sókn­ar­blaða­menn. Og svo að Sig­mundur neiti að tala við RÚV og tali við Útvarp Sögu í stað­inn. Þetta er allt svo ótrú­leg­t.”  

Varð­andi mögu­leika á kosn­ingum á þessu ári segir Birgitta að það væri í raun ekki það ákjós­an­leg­asta fyrir Pírata.

„Við erum ekki undir það búin. En stundum verður maður að hugsa stærra en um sjálfan sig.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None