Hafa ekki efni á nauðsynlegum lækningum

Bein kostnaðarþáttaka sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu hefur nær tvöfaldast á síðustu þremur áratugum, samkvæmt skýrslu ASÍ. Kona með krabbamein þurfti að greiða hálfa milljón vegna lækniskostnaðar. Ráðherra boðar breytingar.

Fjöldi Íslendinga neitar sér um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu ár hvert vegna fjárskorts.
Fjöldi Íslendinga neitar sér um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu ár hvert vegna fjárskorts.
Auglýsing

Kostn­að­ar­þátt­taka sjúk­linga vegna heil­brigð­is­þjón­ustu hefur nær tvö­fald­ast und­an­farna ára­tugi og tölu­verður fjöldi lands­manna neitar sér um nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu vegna kostn­aðar ár hvert. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) um kostnað almenn­ings vegna lækn­is- og heil­brigð­is­þjón­ustu. Þeir tekju­lægri neita sér frekar um lækn­is­þjón­ustu en þeir tekju­hærri. 

Sam­kvæmt ASÍ standa heim­ilin undir um 20 pró­sent af öllum heil­brigðis­út­gjöldum með beinni þátt­töku í heil­brigð­is­kerf­inu. Þá er bent á rann­sókn Eurostat, þar sem fram kemur að mun stærri hluti fólks sem sækir sér ekki nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu vegna kostn­aðar er hér á landi en í nágranna­lönd­un­um. Um þrjú pró­sent Íslend­inga segj­ast ekki hafa sótt sér nauð­syn­lega lækn­is­þjón­ustu vegna kostn­að­ar, sam­an­borið við 0,5 pró­sent á hinum Norð­ur­lönd­un­um. 

Krabba­meinið kost­aði hálfa milljón

Tekið er dæmi af konu sem greind­ist með ill­vígt krabba­mein vorið 2013 og fór í lang­vinna lyfja­með­ferð í kjöl­farið og hefur síðan þurft lyfja­gjafir og rann­sóknir að jafn­aði þrisvar til fjórum sinnum í mán­uði. Á árinu 2013 greiddi hún beint ríf­lega 142.000 krónur í komu­gjöld og rann­sókn­ir. Á árinu 2014 námu bein útgjöld hennar vegna þess­ara þátta ríf­lega 154.000 en í sept­em­ber það ár þegar veik­inda­réttur hjá atvinnu­rek­anda, rétt­indi í sjúkra­sjóði og réttur til sjúkra­dag­pen­inga frá Sjúkra­trygg­ingum var full­nýttur fékk konan úrskurð­aðan end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og fór þá að greiða sam­kvæmt gjald­skrá örorku­líf­eyr­is­þega. Á árinu 2015 voru greiðslur vegna komu­gjalda og rann­sókna um 61.000 krón­ur. Að auki hefur konan haft lyfja­kostnað sem nemur um 50.000 krónum á ári. Með­ferð er ólok­ið. Heild­ar­kostn­aður sjúk­lings­ins vegna veik­inda sinna á þessu þriggja ára tíma­bili nemur því um 500.000 krón­um.

Auglýsing

Fimmt­ungur fer ekki til tann­læknis

„Það vekur líka athygli að mik­ill munur er á svörum eftir tekjum en meðal tekju­lægsta hóps­ins hér á landi eru um 6% sem hafa ekki sótt sér lækn­is­þjón­ustu vegna kostn­aðar en 0,6% meðal þeirra tekju­hæst­u,” segir í skýrsl­unni. „Þegar skoð­aðar eru tölur um tann­lækna­þjón­ustu er myndin enn verri en nærri fimmt­ungur tekju­lægsta hóps­ins hér á landi seg­ist ekki hafa sótt sér tann­lækna­þjón­ustu vegna kostn­að­ar­.” 

Í skýrsl­unni er farið ítar­lega yfir flest­öll svið íslenskrar heil­brigð­is­þjón­ustu og kostn­að­ar­þátt­taka ólíkra sam­fé­lags­hópa til­tekin í hverjum og ein­um. Þá eru einnig tekin raun­veru­leg dæmi af sjúk­ling­um. 

Sífellt meiri áhersla hefur verið lögð á að veita sjúk­lingum þjón­ustu án inn­lagnar á sjúkra­hús og er göngu­deild­ar­þjón­usta stór liður í því. Þjón­usta við sjúk­linga sem leggj­ast inn á sjúkra­hús er að jafn­aði gjald­frjáls en sjúk­lingar sem sækja þjón­ustu á bráða­mót­töku eða göngu­deildir sjúkra­húsa greiða fyrir hana, er fram kemur í skýrsl­unn­i. 

Ráð­herra segir kerfið kol­rangt

Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra sagði á borg­ara­fundi RÚV um heil­brigð­is­mál í síð­ustu viku varð­andi kostn­að­ar­þátt­töku sjúk­linga að kerfið væri „kol­rangt” og í því sé vit­laust gef­ið. Það sé flók­ið, ógegn­sætt og ekk­ert heild­ar­yf­ir­lit sé til um hvar sjúk­lingar lendi í kerf­inu. Krist­ján boð­aði á mál­þing­inu nýtt frum­varp sem myndi stokka upp í kerf­inu og byggi á til­lögum þverpóli­tískrar nefndar um Pétur Blön­dal, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, veitti for­ystu áður en hann lést. 

Krist­ján sagði að frum­varpið myndi setja þak á greiðslu­hlut­deild sjúk­linga, sem myndi helst nýt­ast þeim sem mest þurfi að borga. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None