Dagur: Full ástæða til að „slá í klárinn“

Rafbílavæðing gæti orðið hröð á næstu árum. Kynning Teslu Motors á nýjum bíl í gær, þykir marka tímamót fyrir rafbílavæðingu á heimsvísu.

höfði - mynd:reykjavík.is
Auglýsing

„Borgin mun leggja aukna á­herslu á að greiða götur raf­bíla­væð­ingar á næst­unn­i,“ segir Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, en betri inn­viðir fyrir almenna raf­bíla­væð­ingu er eitt af á­herslu­at­rið­unum í aðgerð­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum sem er í und­ir­bún­ingi hjá Reykja­vík­ur­borg. „Borgin vann aðgerð­ar­á­ætlun fyrir nokkrum miss­erum og Orku­veitan jafn­framt. Nú er hins vegar margt sem bendir til þess að þró­unin geti orðið hrað­ari og já­kvæð­ari í þessa átt en áður hefur verið talið og því full ástæða til að slá í klár­inn,“ segir Dag­ur. 

Mikil vakn­ing hefur átt sér stað í bíla­heim­inum á und­an­förnum árum, þegar kemur að raf­bílum og tækni­þróun hefur einnig verið ör. Eitt stærsta augna­blik í til­tölu­lega stuttri sögu raf­bíla í heim­inum var í gær, þegar Elon Musk, stofn­andi og for­stjóri Tesla Motors, kynnti í fyrsta skipti opin­ber­lega nýja teg­und frá Tesla, Model 3, sem kemur á göt­una á næsta ári. Bíll­inn verður mark­aðs­settur fyrir almenn­ing og mun kosta frá 35 þús­und Banda­ríkja­döl­um, eða sem nemur 4,5 millj­ón­um, nýr úr kass­an­um. „Ég full­yrði að þetta verður besti bíll sem hægt verður að kaupa fyrir þennan pen­ing í heim­in­um,“ sagði Musk meðal ann­ars þegar hann kynnti bíl­inn. 

Bíll­inn mun að lág­marki kom­ast um 300 kíló­metra á einni raf­magns­hleðslu, en auk þess verður mögu­legt að fá fjöl­marga auka­hluti við bíl­inn og einnig meiri snerpu í akstri. Model 3 verður þannig útbú­inn að engin und­ir­teg­und mun verða lengur að ná 100 kíló­metra hraða en sex sek­únd­ur. 

Auglýsing



Í dag hefur Tesla þegar tekið á móti forpönt­unum á bílnum fyrir 7,5 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um þús­und millj­örðum króna. Á innan við sól­ar­hring frá því bíll­inn var kynntur hafa 180 þús­und ein­tök verið pönt­uð.

Musk lét hafa eftir sér á kynn­ing­unni að það væri stórt og mikið mál fyrir allan heim­inn að raf­bíla­væð­ing næði að ganga fram hrað­ar, og það væri meg­in­mark­miðið með starf­semi Teslu. Að búa til tækni­lega full­kom­inn bíl, sem gengi fyrir raf­magni, og væri að öllu leyti sam­keppn­is­hæfur við bestu bíla sem ganga fyrir olíu - og menga því meira. 

Eitt af því sem sér­stak­lega hefur verið horft til, að muni stjórna því hversu hröð raf­bíla­væð­ing á heims­vísu getur orð­ið, er upp­bygg­ing landa á innviðum fyrir hleðslur raf­bíla. Sér­stak­lega eru það borg­ar­svæði sem munu þurfa að byggja upp slíka inn­við­i. 



Dagur segir að Reykja­vík­ur­borg sé með­vituð um mik­il­vægi þessa mála­flokks, og upp­bygg­ing fyrir raf­bíla­væð­ingu sé í góðu sam­ræmi við stefnu borg­ar­innar í umhverfs- og skipu­lags­mál­um. Til­lögur um þessi mál muni að lík­indum liggja fyrir síðar á árinu.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None