Neita að svara spurningum um skattamál

Kjarninn hefur í tæpar tvær vikur spurst fyrir um það hvort forsætisráðherrahjónin hafi skilað CFC framtali með skattskýrslum sínum eins og lög gera ráð fyrir. Ítrekuðum fyrirspurnum hefur ekki verið svarað.

sigmundur davíð anna sigurlaug
Auglýsing

For­sæt­is­ráðu­neytið neitar að svara því hvort Anna Sig­ur­laug Páls­dótt­ir, eig­in­kona Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, hafi skilað sér­stöku CFC fram­tali vegna félags­ins Wintris, sem hún á á Tortóla. Ell­efu dagar eru liðnir frá því að Kjarn­inn sendi fyrst fyr­ir­spurn um málið til aðstoð­ar­manns for­sæt­is­ráð­herra, Jóhann­esar Þórs Skúla­son­ar. Ítrek­uðum fyr­ir­spurnum í tölvu­pósti, sím­tölum og smá­skila­boðum hefur ekki verið svar­að. 

CFC stendur fyrir Controlled For­eign Cor­poration, erlend fyr­ir­tæki, félög eða sjóði í lág­skatta­ríkj­um, en lög um slík félög voru sett á Íslandi árið 2009 og lög­gjöfin inn­leidd í kjöl­far­ið. Lögin kveða meðal ann­ars á um að greiða skuli tekju­skatt hér á landi af hagn­aði félags sem íslenskur skatt­að­ili á en er í lág­skatta­ríki. Íslend­ingar sem eiga félög á lág­skatta­svæðum eiga að skila sér­stöku fram­tali með skatt­fram­tal­inu sínu vegna þessa, skýrslu ásamt grein­ar­gerð þar sem meðal ann­ars eru sund­ur­lið­aðar tekj­ur, skatta­legar leið­rétt­ing­ar, arðsút­hlutun og útreikn­ingur á hlut­deild í hagn­aði eða tapi á grund­velli árs­reikn­inga, sem eiga að fylgja. Ef það er ekki gert brýtur það í bága við lög um tekju­skatt

Anna Sig­ur­laug greindi frá því þegar hún sagði frá til­vist félags­ins Wintris að hún hefði gert það að skil­yrði við stofnun að allir skattar væru greiddir strax á Íslandi. Gerð hafi verið grein fyrir öllum tekjum og félagið hafi verið talið fram á skatt­fram­tölum hennar og Sig­mundar Dav­íðs alla tíð. Þau birtu síðar stað­fest­ingu frá KPMG þar sem sagt er að félagið hafi verið fært til eignar alla tíð, sem og verð­bréfa­eign og kröf­ur, auk þess sem tekjur hafi verið færðar á skatt­fram­töl eftir því sem þær féllu til. 

Auglýsing

Í kjöl­far þess sendi Kjarn­inn fyr­ir­spurn til aðstoð­ar­manns for­sæt­is­ráð­herra. Fyr­ir­spurnin snýr að því hvernig gerð hafi verið grein fyrir félag­inu, og hvort CFC fram­tali hafi verið skilað með fram­tali henn­ar. Þessu hefur ekki verið svar­að, eins og fyrr seg­ir. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None