Framsóknarflokkurinn styður Sigmund áfram

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir forseta Íslands ekki hafa sagt satt á blaðamannafundi á Bessastöðum í hádeginu.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir forseta Íslands ekki hafa sagt satt á blaðamannafundi á Bessastöðum í hádeginu.
Auglýsing

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins styður Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann flokks­ins og frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, eftir atburði dags­ins. Þing­flokk­ur­inn llýsir ánægju með „þá virð­ing­ar­verðu afstöðu for­manns­ins sem felst í því að hann skuli vera reiðu­bú­inn að stíga þetta skref til að gera rík­is­stjórn­inni kleift að vinna áfram að þeim mik­il­vægu verk­efnum sem nú liggja fyr­ir.” Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þing­flokkn­um. „For­mað­ur, vara­for­maður og aðrir þing­menn flokks­ins eru sam­mála um að  mik­il­vægt sé að halda áfram að upp­lýsa um þann fjölda fyr­ir­tækja í eigu Íslend­inga sem skráð eru erlendis til að tryggja að allir standi skil á sínu til sam­fé­lags­ins eins og for­maður flokks­ins og kona hans hafa gert,” segir í til­kynn­ing­unni.

Frosti segir Sig­mund hafa gert mis­tök

Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir í stöðu­færslu á Face­book að með afsögn sinni hafi Sig­mundur Davíð skapað for­sendur fyrir áfram­hald­andi sam­starfi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og rík­is­stjórn­inni færi til að ljúka þeim mik­il­vægu verk­efnum sem hún hefur unnið að. Afsögn hans beri vott um fórn­fýsi. Frosti und­ir­strikar þó að Sig­mundur hafi gert mis­tök með því að tengj­ast félagi á Tortóla og einnig að upp­lýsa ekki um hags­muni félags­ins gagn­vart slita­búum föllnu bank­anna.

Sig­mundur segir Ólaf Ragnar ljúga

Þá kom önnur til­kynn­ing frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þar sem fram kom að á fundi for­seta Íslands og for­sæt­is­ráð­herra hafi sá síð­ar­nefndi upp­lýst for­seta um stöðu mála í stjórn­málum hér á landi og greint jafn­framt frá áformum sínum um að leggja til við for­seta að þing yrði rofið og boðað yrði til almennra alþing­is­kosn­inga ef í ljós kæmi að meiri­hluta stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina væri brost­inn.

Auglýsing
„Form­leg til­laga um þing­rof var hvorki borin upp á fund­inum né kynnt for­seta eins og skilja mátti af ummælum for­seta Íslands að fundi lokn­um. For­sæt­is­ráð­herra tjáði for­seta að hann hyggð­ist bera þing­rof­s­til­lögu form­lega upp við for­seta ef nið­ur­staða um fram­an­greint lægi fyr­ir,” segir í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None