Vigdís vildi þingrof og kosningar strax

Formaður fjárlaganefndar var sammála tillögu forsætisráðherra um að rjúfa þing og boða til kosninga. Hún furðar sig á að oddvitar þriggja kjördæma Framsóknarflokksins sitji ekki í ríkisstjórn. Almennar leikreglur flokkanna hafi verið beygðar.

Vigdís var sammála Sigmundi Davíð um að rjúfa þing strax og boða til kosninga.
Vigdís var sammála Sigmundi Davíð um að rjúfa þing strax og boða til kosninga.
Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, studdi til­lögu Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra um að þing verði rofið og kosn­ingar boð­aðar án taf­ar. 

„Þegar þing­flokks­fundur var hald­inn eftir fund Sig­mundar á Bessa­stöðum gaf ég út að ég mundi styðja þá til­lögu að flokk­arnir end­ur­nýj­uðu umboð­ið,” segir Vig­dís í sam­tali við Kjarn­ann. „Ég hefði talið það lang­besta kost­inn að rjúfa þing og efna til kosn­inga, á þeim for­sendum hver staðan er og þeirrar háværu kröfu. Það hefði verið eðli­leg­ast í stöð­unn­i.” 

Eins og komið hefur fram veitti Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, Sig­mundi Davíð ekki þetta umboð. 

Auglýsing

Furðar sig á ráð­herra­vali flokks­ins

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, verð­andi for­sæt­is­ráð­herra, til­kynnti á blaða­manna­fundi í gær að Lilja Alfreðs­dóttir yrði næsti ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins í rík­is­stjórn. Lilja hefur unnið sem verk­efn­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyti Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar. 

Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, furðar sig á þessu, þó að hún und­ir­striki að Lilja sé mjög fær kona með yfir­grips­mikla þekk­ingu og að henni lít­ist vel á að hún komi inn í rík­is­stjórn. 

„Það er bara annar hlutur heldur en hvernig raðað er á ráð­herra­lista,” segir Vig­dís. Hefðin sé að odd­vitar flokka í kjör­dæmum lands­ins fái ráð­herra­sæti. 

Þrír odd­vitar Fram­sóknar án ráð­herra­stóls

„Eftir dag­inn í dag verða þrjú kjör­dæmi sem eiga ekki odd­vita í rík­is­stjórn­inni: Reykja­vík norður og suður og svo norð­austur kjör­dæmi eftir að Sig­mundur hætt­ir,” segir hún. „En það er til­laga stjórnar flokks­ins að hafa þetta með þessum hætt­i.” 

Spurð hvort hún hafi sóst eftir ráð­herra­emb­ætti í gær seg­ist Vig­dís ekki form­lega hafa gert það, ekk­ert frekar en eftir kosn­ing­arnar 2013. 

„Þessi óskrif­aða regla liggur svo sem í augum uppi, þannig að ég held að þing­menn þurfti ekki að minna á sig. Þetta eru almennar leik­reglur flokk­anna,” segir hún. „En þó að ég geri athuga­semd við þetta ráð­herra­val, þá óska ég Lilju alls hins besta í störf­um, þar sem ég er jákvæð og bjart­sýn að eðl­is­fari.” 

Hægt er að fylgj­ast með atburðum dags­ins hér í beinn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None