Maskína birtir nú í fyrsta sinn fylgistölur flokkanna, á fyrsta heila degi nýrrar ríkisstjórnar, og mælist hún með 31 prósent fylgi.
Píratar eru stærsti flokkurinn, rösklega 34 prósent myndu kjósa þá ef kosningar færu fram nú. Sjálfstæðisflokkurinn fengi ríflega 21 prósent atkvæða, Vinstrihreyfingin - grænt framboð 20 prósent, Framsóknarflokkurinn fengi 9-10 prósent, Samfylkingin rösklega 7 prósent og Björt framtíð rösklega 5 prósent.
Aðrir flokkar fengju minna. Rúmlega 8 prósent svarenda myndu ekki kjósa, skila auðu, neita að svara eða segjast ekki vita hvaða flokk þeir myndu kjósa, sem er óvenju lágt.
Rúmur helmingur kjósenda vill að kosið verði til Alþingis í vor, ríflega fjórðungur í haust og rösklega 23% vilja kjósa vorið 2017.
„Hærra hlutfall kvenna en karla vill kosningar nú í vor, yngra fólk fremur en eldra og meirihluti Reykvíkinga, en 38-48% annarra landsmanna. Eftir því sem tekjur lækka þeim mun meira er krafa um kosningar í vor. Á milli 62% og 81% kjósenda stjórnarandstöðuflokkanna vilja kosningar í vor en 3-4% kjósenda stjórnarflokkanna, en þeir vilja helst kosningar að ári. Eftir því sem áhugi á atburðum síðustu daga eykst þeim mun líklegra er fólk til að vilja kosningar strax í vor,“ segir í tilkynningu Maskínu.
Svarendur voru 2438, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er panelhópur fólks sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á aldrinum 18-75 ára. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 7.-8.apríl 2016.