Íslendingar kunna að fyrirgefa kynferðislega tilraunastarfsemi fjármálaráðherra, þegar Bjarni Benediktsson skráður var í gagnagrunni Ashley Madison sem lak út, en eftir hrunið hafa þeir enga þolinmæði gagnvart skuggalegum fjármálagjörningum. Þetta segir skáldsagnahöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir í pistli á heimasíðu New York Times, vakið hefur mikla athygli.
Pistillinn ber titilinn The Cheating Politicians of Iceland, og fjallar meðal annars um Panamaskjölin og hvers vegna Íslendingar eru reiðir út í ráðamenn. „Ísland, íbúafjöldi 330.000, er friðsælasta land í heimi. Þetta er land þar sem ofbeldisglæpir eru fátíðir og fjárkúgarar gefa kvittun. Við erum ekki vön því að vera sett í flokk með spilltustu stjórnvöldum í heimi. En hér erum við, í forgrunni allrar umfjöllunar um Panama-skjölin,“ sagði Yrsta meðal annars í pistlinum, í þýðingu mbl.is.
Yrsa segir smæðina gera margt auðveldara en hjá stærri þjóðum, en það bjóði líka hættunni heim. Það sé til að mynda erfiðara að forðast hættuna af því að hygla vinum og vandamönnum. „Það er vanalega auðveldara að leysa vandamál smárra þjóða heldur en í stórum og flóknum samfélögum. Það er ekki tilfellið þegar um er að ræða spillingu meðal forréttindaelítunnar. Í Bandaríkjunum talið þið um sex gráðu fjarlægð [six degrees of separation] milli fólks. Hér á Íslandi, í okkar mikla fámenni, er gráðan ein. Þegar þú hittir einhvern þá kemstu að því innan nokkurra mínútna að þið eigið sameiginlegan ættingja, vin, samstarfsmann, óvin eða fyrrverandi. Það gerir það erfiðara að forðast að hygla nánum og virktarvinum.“
Hún lýkur pistli sínum á því að fjalla um nýjan forsætisráðherra Íslands, Sigurð Inga Jóhannsson, sem hún segir hafa verið „svolítið týndan“.
„Í dag höfum við bráðabirgðaforsætisráðherra sem virtist svolítið týndur og óformlega klæddur þegar hann var kynntur almenningi á miðvikudag. Hann virðist ekki eiga bindi. En hann á ekki aflandsreikning. Né Ashley Madison aðgang. Það er eitthvað,“ segir Yrsa.