Framsóknarflokkurinn er „smáflokkur með mikilmennskubrjálæði“ og það er ekki eðlilegt að Sjálfstæðisflokkurinn lyfti forystu Framsóknar til æðstu metorða. Þetta segir Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. „Nú er mál að linni,“ segir Vilhjálmur.
Í greininni, sem ber heitið „Aldrei kaus ég Framsókn, en alltaf fæ ég Framsókn!“ skrifa hann um flokkinn og sögu valdatíma hans. „Það eru undarleg örlög sem þessari þjóð eru búin. Það er sama á hvern veg kosið er, alltaf fá menn Framsóknarflokkinn upp úr hattinum. Þessi flokkur telur að hann sé jafn stór eða stærri en Sjálfstæðisflokkurinn, sama hvernig kosningar fara.“
Á þessari öld hafi Framsóknarflokkurinn verið smáflokkur. „Með lýðskrumi og ranglátri kjördæmaskipan tókst flokknum þó að fá jafn mörg þingsæti og Sjálfstæðisflokkurinn, með 4.000 færri atkvæði! Forseti lýðveldisins taldi að Framsóknarflokkurinn væri sigurvegari kosninga 2013. Því skyldi formaður flokksins hafa forystu um stjórnarmyndun! Alveg nýr mælikvarði! Enn á ný lét Sjálfstæðisflokkur það yfir sig ganga að lyfta formanni Framsóknarflokksins í stól forsætisráðherra.
Þegar sá forsætisráðherra sagði af sér tilnefndi hann eftirmann sinn. Og enn lét Sjálfstæðisflokkurinn það fyrir sig ganga, jafnvel þótt hin nýútnefndi forsætisráðherra hefði látið hafa sig hafa það níðingsverk að greiða atkvæði með því að draga fyrrverandi forsætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins fyrir Landsdóm,“ skrifar Vilhjálmur. „Nú er mál að linni. Það er ekki eðlilegt að Sjálfstæðisflokkurinn lyfti forystu Framsóknarflokksins til æðstu metorða, flokki sem er smáflokkur með mikilmennskubrjálæði."