Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun, að tillögu fjármála- og efnahagsráðherra, að skipaður verði sérstakur starfshópur til að gera tillögur að breytingum á lögum, reglugerðum eða verklagsreglum sem saman myndi aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda gegn skattaundanskotum og nýtingu skattaskjóla almennt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar.
Í hópnum verða fulltrúar forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis, auk fulltrúa frá Ríkisskattstjóra, skattrannsóknarstjóra og tollstjóra. Starfshópurinn skal skila skýrslu með tillögum sínum til ríkisstjórnarinnar eigi síðar en 30. júní 2016.
„Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur nú þegar gert þeim embættum sem fara með skattframkvæmd, eftirlit, rannsóknir og innheimtu ljóst að það er reiðubúið til viðræðna við þau um ráðstafanir til að þau geti komist yfir sem fyllstar upplýsingar um eignir þeirra sem framtalsskyldir eru hér á landi í skattaskjólum og að ríkur vilji sé til þess að tryggja að embættin séu þess megnug að vinna úr þeim. Á það bæði við um úrvinnslu þeirra gagna sem þegar hafa verið keypt og önnur gögn sem mögulegt yrði að afla.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hafa þegar borist ítarleg svör frá umræddum stofnunum og vinnur að undirbúningi aðgerðaáætlunar á grundvelli þeirra svara og annarra atriða sem eru viðeigandi. Þá undirbýr ráðuneytið nú sérstakt mat á umfangi fjármagnstilfærslna og undanskota á aflandssvæðum og mun það nýtast til að áætla tekjutap hins opinbera af slíkri starfsemi um leið og fjárhagsleg þýðing þess að unnið sé gegn undanskotum verður staðfest,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Eftir að skattrannsóknarstjóri keypti gögn af huldumanni í fyrrasumar voru 30 mál sett í formlega skattrannsókn. Afgangurinn, hátt í 400 mál, var sendur ríkisskattstjóra. Hann hefur nú farið yfir málin, og tekið 178 mál til sérstakrar skoðunar, eins og hann staðfesti við fjölmiðla fyrr í mánuðinum.