Starfshópur skipaður vegna skattaundanskota og skattaskjóla

Sigurður Ingi Jóhannsson
Auglýsing

Rík­is­stjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morg­un, að til­lögu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að skip­aður verði sér­stakur starfs­hópur til að gera til­lögur að breyt­ingum á lög­um, reglu­gerðum eða verk­lags­reglum sem saman myndi aðgerða­á­ætlun íslenskra stjórn­valda gegn skattaund­anskotum og nýt­ingu skatta­skjóla almennt. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyti Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar.

Í hópnum verða full­trúar for­sæt­is­ráðu­neytis og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is, auk full­trúa frá Rík­is­skatt­stjóra, skatt­rann­sókn­ar­stjóra og toll­stjóra. Starfs­hóp­ur­inn skal skila skýrslu með til­lögum sínum til rík­is­stjórn­ar­innar eigi síðar en 30. júní 2016.

„Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur nú þegar gert þeim emb­ættum sem fara með skatt­fram­kvæmd, eft­ir­lit, rann­sóknir og inn­heimtu ljóst að það er reiðu­búið til við­ræðna við þau um ráð­staf­anir til að þau geti kom­ist yfir sem fyllstar upp­lýs­ingar um eignir þeirra sem fram­tals­skyldir eru hér á landi í skatta­skjólum og að ríkur vilji sé til þess að tryggja að emb­ættin séu þess megnug að vinna úr þeim. Á það bæði við um úrvinnslu þeirra gagna sem þegar hafa verið keypt og önnur gögn sem mögu­legt yrði að afla.

Auglýsing

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu hafa þegar borist ítar­leg svör frá umræddum stofn­unum og vinnur að und­ir­bún­ingi aðgerða­á­ætl­unar á grund­velli þeirra svara og ann­arra atriða sem eru við­eig­andi. Þá und­ir­býr ráðu­neytið nú sér­stakt mat á umfangi fjár­magnstil­færslna og und­an­skota á aflands­svæðum og mun það nýt­ast til að áætla tekju­tap hins opin­bera af slíkri starf­semi um leið og fjár­hags­leg þýð­ing þess að unnið sé gegn und­an­skotum verður stað­fest,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Eftir að skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóri keypti gögn af huld­u­­manni í fyrra­­sumar voru 30 mál sett í for­m­­lega skatt­rann­­sókn. Afgang­­ur­inn, hátt í 400 mál, var sendur rík­­is­skatt­­stjóra. Hann hefur nú farið yfir mál­in, og tekið 178 mál til sér­­stakrar skoð­un­­ar, eins og hann stað­festi við fjöl­miðla fyrr í mán­uð­in­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None