Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra mælti nú síðdegis fyrir frumvarpi á Alþingi sem markar næstu skref við losun fjármagnshafta á Íslandi, að því er segir í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. „Frumvarpið er liður í heildstæðri aðgerðaáætlun um losun fjármagnshafta sem stjórnvöld kynntu í júní á síðasta ári. Fyrsta skrefið í þeirri áætlun var að leysa þann vanda sem slitabú fallinna fjármálafyrirtækja höfðu skapað og hefur sá þáttur verið til lykta leiddur að fullu,“ segir enn fremur.
Frumvarpið er umfangsmikið, enda margvísleg flókin álitamál sem taka þarf tillit til. Samtals er það á 42 síðum.
Aflandskrónueignir, sem mynda það sem oft er nefnt hengja aflandskróna, eru nú yfir 300 milljarðar króna og er „líklegt talið að eigendur þeirra kysu að umbreyta þeim í gjaldeyri ef slíkt væri heimilt“ eins og segir í tilkynningu stjórnvalda.
Það gæti haft neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð og fjármálalegan stöðugleika landsins. Dæmi um slíkar eignir eru innstæður, fjármunir á fjárvörslureikningi, skuldabréf og víxlar. Aflandskrónureignir verða áfram háðar sérstökum takmörkunum en megintilgangur frumvarpsins er að aðgreina aflandskrónueignir nánar en nú er gert og með tryggilegum hætti, þannig að stöðugleiki hagkerfisins verndist eins og best verður kosið við framkvæmd útboðsins.
Verði frumvarpið að lögum er áformað að Seðlabanki Íslands haldi gjaldeyrisútboð í næsta mánuði þar sem öllum aflandskrónueigendum verður gefinn kostur á að skipta aflandskrónueignum sínum í evrur.
Þær aflandskrónueignir sem ekki verða nýttar í útboði Seðlabankans munu sæta þeim takmörkunum sem boðaðar eru í frumvarpinu.
Í tæp átta ár hafa fjármagnshöftin takmarkað áhættudreifingu í eignasöfnum innlendra aðila og heft möguleika fyrirtækja til að nýta samstarfsverkefni við erlenda aðila og ávöxtunartækifæri erlendis. Efnahagslegt óhagræði sem af þessu hlýst fer vaxandi með tímanum.
Þessi liður í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta leggur grunninn að næstu skrefum í átt til losunar gjaldeyrishafta og munu þau snúa „að heimilum og fyrirtækjum á Íslandi“ segir í tilkynningunni.