Fyrrverandi þingmenn og ráðherrar fengu hálfan milljarð í eftirlaun 2015

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins greiddi hálfan milljarð króna í eftirlaun til 231 fyrrverandi þingmanna í fyrra. Meðaleftirlaun 48 fyrrverandi ráðherra voru 330.000. Taki fólk annað starf á vegum ríkisins dragast eftirlaunin frá launum.

Ríkisráðsfundur 1988: Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðmundur Bjarnason, Steingrímur Hermannsson, Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, Halldór Ásgrímsson, Jón Baldvin Hannibalsson.
Ríkisráðsfundur 1988: Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðmundur Bjarnason, Steingrímur Hermannsson, Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, Halldór Ásgrímsson, Jón Baldvin Hannibalsson.
Auglýsing

Eft­ir­launa­greiðslur úr Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR) til fyrr­ver­andi ráð­herra og alþing­is­manna námu rúmum 510 millj­ónum króna á síð­asta ári. Þar af voru rúmar 400 millj­ónir til fyrr­ver­andi þing­manna og rúmar 100 til fyrr­ver­andi ráð­herra. Ráð­herrar fá þó bæði greidd eft­ir­laun fyrir þing­mennsku og ráð­herra­starf. 

231 fyrr­ver­andi alþing­is­maður fékk greitt eft­ir­laun frá LSR árið 2015. Þar af voru 183 þing­menn sem fengu ein­ungis eft­ir­laun fyrir þing­mennsku, en 48 fyrr­ver­andi ráð­herrar sem fengu einnig greidd eft­ir­laun fyrir það starf. 

Fyrr­ver­andi ráð­herrar fá 330.000 krónur að með­al­tali

Eft­ir­launa­greiðslur til fyrr­ver­andi þing­manna námu sam­tals rúmum 406 millj­ónum króna, sem gerir tæpa 1,8 milljón á ári á hvern að með­al­tali, eða um 150.000 krónur á mán­uð­i. 

Auglýsing

Eins og áður segir fengu 48 fyrr­ver­andi ráð­herrar eft­ir­launa­greiðslur frá LSR í fyrra, sam­tals um 105 millj­ónir króna. Það gerir að með­al­tali um 2,2 millj­ónir króna á ári á hvern fyrr­ver­andi ráð­herra að með­al­tali, eða rúmar 180 þús­und krónur á mán­uði. Þeir fá einnig greidd eft­ir­laun fyrir þing­mennsku og námu því eft­ir­launa­greiðslur til hvers fyrr­ver­andi ráð­herra í fyrra að með­al­tali um 330.000 krónum á mán­uði, eða tæpum fjórum millj­ónum á ári.  

150 þús­und króna með­al­eft­ir­laun hjá öðrum

Sam­kvæmt nýj­ustu árs­skýrslu LSR fyrir árið 2015 greiddi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn alls 40,5 millj­arð til 22.615 líf­eyr­is­þega. Þetta gerir með­al­tals­greiðslur um tæpar 1,8 milljón á mán­uði eða um 150 þús­und krónur á mán­uði, eins og óbreyttir þing­menn eru að fá að með­al­tali í eft­ir­laun. Þetta kemur fram í svari LSR við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um eft­ir­launa­greiðslur ráð­herra og þing­manna. 

Árið 2014 fengu 224 fyrr­ver­andi þing­menn eft­ir­laun, sam­tals 388 millj­ónir króna, eða rúm­lega 1,7 milljón á mann að með­al­tali, sem gerir um það bil 145 þús­und krónur á mán­uði. Þar af eru 50 fyrr­ver­andi ráð­herrar sem fengu sömu­leiðis eft­ir­launa­greiðslur fyrir þau störf, um 110 millj­ónir alls. Það gerir um 2,2 millj­ónir á ári, eða tæpar 185 þús­und krónur á mán­uði. Alls fengu þessir 224 ein­stak­lingar greidd um 500 millj­ónir króna í eft­ir­laun árið 2014, sem eru um 10 millj­ónum minna heldur en í fyrra. 

Ekki hægt að fá eft­ir­laun og vera á launum

Fyrr­ver­andi ráð­herrar og þing­menn fá greitt sam­kvæmt lögum númer 141/2003, um eft­ir­laun for­seta Íslands, ráð­herra, alþing­is­manna og hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Fram kemur í svari LSR að rétt sé að minna á að með lögum númer 12/2009 voru fyrr­nefnd lög afnum­in, en þegar áunnin rétt­indi skyldu halda sér. Taki menn annað starf á vegum rík­is­ins á meðan eft­ir­launa­greiðslur eru greidd­ar, koma þau laun til frá­drátt­ar. Með öðrum orðum þá er ekki hægt að fá greidd laun fyrir starf á vegum rík­is­ins ofan á eft­ir­laun. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None