Evran fari úr 140 krónum í átt að 120 á tveimur árum

Þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans gerir ráð fyrir að gengi krónunnar gagnvart erlendum myntum muni styrkjast umtalsvert á næstu árum. Hagstofan gerir ráð fyrir kröftugu hagvaxtarskeiði næstu fimm árin.

23672105573_9d4a17e09a_k.jpg
Auglýsing

Í nýrri þjóð­hags- og verð­bólgu­spá hag­fræði­deildar Lands­bank­ans er gert ráð fyrir að gengi krón­unnar gagn­vart evru mun styrkja umtals­vert á næstu árum, og fari í átt­ina að 120 krónum á næstu tveimur árum. Evran kostar nú 140 krón­ur, og hefur gengi krón­unnar gagn­vart henni styrkst nokkuð að und­an­förn­u. 

Góð skulda­staða

Þetta er tölu­verð breyt­ing frá spá bank­ans í nóv­em­ber, en þá var ekki gert ráð fyrir jafn mik­illi styrk­ingu. Ástæðan fyrir breyt­ingu er veru­lega góð skulda­staða þjóð­ar­bús­ins erlend­is, ekki síst eftir að hag­felld nið­ur­staða fékkst í mál­efni slita­búa föllnu bank­anna. 

Gengi krónu gagnvart evru mun styrkjast á næstu árum, samkvæmt spá hagfræðideildar Landsbankans.Þá er einnig gert ráð fyrir áfram­hald­andi vexti í ferða­þjón­ustu, sem hefur veru­leg áhrif á gjald­eyr­is­inn­streymi eflir útflutn­ings­tekj­ur. Gert er ráð fyrir að erlendir ferða­menn verið 2,2 millj­ónir á ári árið 2018, en spár gera ráð fyrir að þeir verði 1,6 millj­ónir á þessu ári. Í spánni er gert ráð fyrir að heild­ar­út­flutn­ingur auk­ist um 7,1% á þessu ári en síðan dragi úr aukn­ing­unni. Áfram er gert ráð fyrir því að þróun útflutn­ings næstu ára mark­ist að miklu leyti af vexti ferða­þjón­ust­unn­ar. „Er­lendum ferða­mönnum muni fjölga um 35% á þessu ári, um 15% á næsta ári og um 10% árið 2018. Ef spáin gengur munu tæp­lega 2,2 millj­ónir ferða­manna koma til lands­ins árið 2018,“ segir í spá Lands­bank­ans.

Auglýsing

Kröft­ugur hag­vöxtur

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans spáir að hag­vöxtur á þessu ári verði 5,4% sem er tals­vert meiri hag­vöxtur en gert var ráð fyrir í þjóð­hags- og verð­bólgu­spá sem birt var í nóv­em­ber 2015. Áfram er gert ráð fyrir kröft­ugum hag­vexti og að hag­vöxtur verði að með­al­tali 4,3% á árunum 2017 og 2018. Verð­bólgu­horfur eru nú taldar betri en áður og er gert ráð fyrir að verð­bólga verði að með­al­tali 1,9% á þessu ári og verði að með­al­tali 3,6% á næstum tveimur árum.

Hag­fræði­deildin segir að aug­ljós þörf sé fyrir frek­ari upp­bygg­ingu íbúða, en á næstu árum verði eft­ir­spurn mun meiri en fram­boð, sem hefur áhrif á fast­eigna­verð til hækk­un­ar. Frá árinu 2010 hefur raun­verð íbúða í fjöl­býli hækkað um meira en þrjá­tíu pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á meðan sér­býli hefur hækkað um tæp­lega 20 pró­sent. 

Hag­stofan gerir ráð fyrir 4,3 pró­sent hag­vexti

Lands­fram­leiðslan eykst um 4,3% árið 2016, 3,5% árið 2017 vegna einka­neyslu og fjár­fest­ing­ar. 

Hag­stofa Íslands hefur í dag gefið út þjóð­hags­spá að sumri í rit­röð sinni, Hag­tíð­indum. Spáin nær til áranna 2016 til 2021.

Gert er ráð fyrir að hag­vöxtur verði 4,3% árið 2016, 3,5% árið 2017 og nærri 3% árlega árin 2018 - 2021. Inn­lend eft­ir­spurn, fyrst og fremst einka­neysla og fjár­fest­ing eru að baki hag­vext­inum fyrstu árin en árið 2016 er spáð 6,6% aukn­ingu þjóð­ar­út­gjalda.Fjárfesting í ferðaþjónustu hefur farið vaxandi á undanförnum árum.

Afgangur verður af utan­rík­is­við­skiptum allan spá­tím­ann, lítið eitt minnk­andi í fyrstu þegar mestur kraftur er í einka­neyslu og fjár­fest­ingu, en stöð­ugur eftir það.

Verð­bólga hefur verið lítil síð­ustu ár, en búist er við að hún auk­ist seinni hluta árs­ins 2016 og að hún hald­ist nokkuð yfir verð­bólgu­mark­miði þar til líður á spá­tím­ann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None