Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segir að hún myndi ekki sækjast eftir ráðherrastól ef Píratar kæmust í aðstöðu til að „ráðskast með það“ að loknum kosningum. „Ég tel að ég gæti nýst mun betur sem t.d. forseti Alþingis en ráðherra,“ skrifar Birgitta á Facebook-síðu sína. „Ég þrái að laga svo margt sem er bilað og virkar ekki í störfum þingsins og hvernig stofnunin Alþingi er rekin. Við erum að vinna að langtímaáætlun um hvernig hægt er að efla þingið og breyta gagnlausum valdahefðum til að tryggja að valdið færist í raun og sann til fólksins.“
Birgitta tjáir sig um brotthvarf Helga Hrafns Gunnarssonar af Alþingi, en hann tilkynnti í morgun að hann ætlaði ekki að bjóða sig fram til áframhaldandi setu á Alþingi. Hann ætlar frekar að hella sér í grasrótarstarf flokksins, sagði hann. „Helgi Hrafn Gunnarsson er ekki að hætta, hann er að færa sig til. Hann hefur verið að búa til öflug verkfæri sem munu nýtast bæði þingheimi og almenningi mjög vel. Hann kemur svo tvíefldur af reynslu og orku aftur inn á þing á þarnæsta kjörtímabili. Þá verð ég horfin úr þingheimum og vonandi verða margir búnir að öðlast dýrmæta reynslu til að miðla til næstu kynslóða hins nýja Íslands,“ skrifar Birgitta.
Hún segist munu sakna þess mjög mikið að hafa Helga Hrafn ekki með á þingi. „En ég fagna þessu meira að hafa hann í því hlutverki sem hann sjálfur metur að sé mikilvægara fyrir liðsheildina. Það er nefnilega svo að við erum ekki venjulegur flokkur og lítum ekki svo á að eitt hlutverk sé mikilsverðara en annað. Reynsla hans af þingstörfum mun nýtast mjög vel í að byggja nauðsynlega brú á milli þings og grasrótar/þjóðar og ég hef óbilandi trú á því að þetta verkefni Helga Hrafns muni verða mjög farsælt og öðrum til eftirbreytni.“