Sterk verkjalyf fundust í 19 af 36 látnum einstaklingum í fyrra

Sterk verkjalyf fundust í helmingi látinna einstaklinga sem rannsakaðir voru af lyfjateymi Landlæknis í fyrra. Þeir sem eru háðir sterkum verkjalyfjum eru 40 sinnum líklegri til að verða heróínfíklar. Notkun sterkra verkjalyfja hefur aukist hér á landi.

Misnotkun á sterkum verkjalyfjum getur haft alvarlegar afleiðingar. Þeir sem eru háðir slíkum lyfjum eru 40 sinnum líklegri til að þróa með sér heróínfíkn.
Misnotkun á sterkum verkjalyfjum getur haft alvarlegar afleiðingar. Þeir sem eru háðir slíkum lyfjum eru 40 sinnum líklegri til að þróa með sér heróínfíkn.
Auglýsing

Sífellt fleiri Íslend­ingar nota sterk verkja­lyf að stað­aldri. Árið 2014 fengu ríf­lega 22.000 Íslend­ingar ávísað Park­ódín for­te, en skammtur á hvern sjúk­ling af ávís­unum af lyf­inu fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2016 jókst um 17,5 pró­sent sam­an­borið við sama tíma­bil árið 2006. Þetta kemur fram í grein frá emb­ætti Land­læknis í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins

Sterk verkja­lyf fund­ust í helm­ingi lát­inna

Lyfjateymi Land­læknis rann­sak­aði 36 dauðs­föll á síð­asta ári þar sem grunur lék á að ein­stak­lingar hafi lát­ist vegna lyfja­eitr­un­ar. Í flestum til­fellum komu nokkur lyf við sögu, oft að áfengi með­töldu. Ópíóð­ar, sem eru verkja­lyf eins og kódein (Parkódín) og mor­fín, fund­ust í 19 af þessum 36 ein­stak­ling­um, eða í rúm­lega helm­ingi. Metýlfenídat, eða ríta­lín, fannst í níu manns og í sex af þeim fund­ust einnig sterk verkja­lyf. 

Verkja­lyfja­notkun hefur verið að aukast á Íslandi und­an­farin ár, sem er öfugt við þró­un­ina á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Notkun ópíóíða hefur meira en tvö­fald­ast á síð­ustu 20 árum og það er visst áhyggju­efni fyrir margra hluta sak­ir.

Auglýsing

40 sinnum lík­legri til að þróa með sér heróín­fíkn  

Þeir sem eru háðir sterkum verkja­lyfjum eru 40 sinnum lík­legri en aðrir til að verða heróín­sprautu­fíkl­ar. Óhóf­legum ávís­unum verkja­lyfja er meðal þess sem er kennt um þann mikla heróín­far­aldur sem geysar í Banda­ríkj­unum í dag, er fram kemur í grein­inni. Fjöldi þeirra sem lést af völdum heróín­fíknar í Banda­ríkj­unum tvö­fald­að­ist á milli áranna 2011 og 2013. 

Eins og segir í Lækna­blað­inu hefur heróín ekki náð fót­festu á Íslandi, en þeir sem glíma við sprautu­fíkn velja flestir metýlfenídat, eða ríta­lín, sem fyrsta kost. 

Verkjateymi á heilsu­gæslu væri lausn

Þá kemur fram í grein­inni að margar rann­sóknir hafi stað­fest gagn­semi ópíóíða til að vinna á tíma­bundnum verkj­um, en gagn­semi þeirra gegn lang­vinnum verkjum hefur ekki verið stað­fest. Brýnt nauð­syn sé á að finna úrræði fyrir ein­stak­linga með lang­vinna verki utan Land­spít­al­ans og er bent á að ein lausn væri verkjateymi innan heilsu­gæsl­unn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None