Vigdís segir Wintris-málið vel undirbúna og skipulagða árás

vigdís hauksdóttir
Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefnd­ar, segir að Wintris-­málið hafi verið vel und­ir­búin og skipu­lögð árás sem átt hafi sér langan aðdrag­anda. Í því hafi Rík­is­út­varp­ið, sem taki til sín 3.600 millj­ónir á ári frá skatt­greið­endum lands­ins, bein­línis leitt Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í gildru. Þetta kemur fram í við­tali við Vig­dísi í DV í dag

Þar segir Vig­dís að hún hafi kennt í brjósti um Sig­mund Davíð þegar hún horfið á við­talið fræga sem frétta­maður sænska rík­is­sjón­varps­ins og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son tóku við hann, og kost­aði Sig­mund Davíð á end­anum for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn. „Það kemur mér ekki við sem þegn í þessu landi hvað fólk gerir við bíl­ana sína, húsin sín, sum­ar­húsin sín og pen­ing­ana sína. EES-­samn­ing­ur­inn gengur meðal ann­ars út á frjálst flæði fjár­magns. Þetta félag var stofnað löngu fyrir banka­hrunið og allar laga­legar for­sendur voru upp­fyllt­ar. Auk þess voru þau búin að borga tæpar 400 millj­ónir í skatta frá 2008 hér á landi. Hvað vill fólk þá meira?“

Í DV er Vig­dís spurð hvort henni þyki mögu­lega sið­laust að koma pen­ingum úr landi með þeim hætti sem for­sæt­is­ráð­herra­hjónin fyrr­ver­andi voru upp­vís af. Vig­dís segir að það hafi eng­inn verið að spá í sið­ferði á árunum fyrir hrun. „Út­rás­ar­vík­ing­arnir tæmdu íslensku bank­ana og skildu allt eftir í rjúk­andi rúst og fengu svo afskrif­aðar þús­undir millj­arða. Eigum við eitt­hvað að ræða það? Svo er ráð­ist á þann mann sem kemur og ætlar að stóla upp og skúra gólfin eftir dans­leik­inn. Maður sem barð­ist með kjafti og klóm á móti kröfu­höf­unum er tek­inn niður sem saka­maður í öllum þessum snún­ingum frá banka­hruni, en hinir eru allir frjálsir ferða sinna. Eng­inn annar flokkur hefur djöfl­ast jafn mikið í kröfu­höf­unum og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og mér finnst þetta ósegj­an­lega ósann­gjarnt.“

Auglýsing

Vig­dís, sem sjálf hefur til­kynnt að hún ætli ekki fram í næstu kosn­ing­um, segir að hún hafi viljað að Sig­mundur Davíð sæti áfram sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann hafi beðist afsök­unar og engin lög brot­ið. „Sig­mundur verður að taka ákvörðun um hvort hann gefur kost á sér áfram í for­mennsku. En ef ég hugsa um þetta á mann­legum nótum þá er ég alveg hissa á að Sig­mundur hafi ekki bara einn góðan veð­ur­dag­inn staðið upp og sagt „fokkjú, þið kunnið ekki gott að meta“.“ Í við­tal­inu kemur þó fram að Vig­dís hafi stutt Hösk­uld Þór­halls­son í for­manns­kjöri Fram­sókn­ar­flokks­ins, þegar hann tap­aði og Sig­mundur Davíð var kjör­inn for­mað­ur. 

Vig­dís hefur und­an­farið boðað að hún og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­for­maður fjár­laga­nefnd­ar, muni birta upp­lýs­ingar um það sem þau kalla seinni einka­væð­ingu bank­anna, þegar samið var við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að þeir myndu eign­ast hlut í þeim. Vig­dís segir að hún sé búin að „djöflast“ í mál­inu frá 2012, nú liggi öll svör fyrir og nið­ur­staða sé kom­in. Og hún segir að þetta verði sprengja. „Stærri en Ices­ave 1, sem hristi nú dug­lega upp í fólki.“>

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None