Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri RÚV og núverandi stjórnandi útvarpsþáttarins Sprengisands á Bylgjunni, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Þetta staðfestir hann við mbl.is. Fyrir í fyrsta sætinu er Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem býður sig áfram fram í það sæti.
Framboðsfrestur fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi rennur út á miðnætti í kvöld. „Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í haust. Ég býð mig fram í 1. sæti til þess að leiða listann í kosningunum. Ef sjálfstæðismenn í kjördæminu ætla mér hins vegar eitthvert annað sæti á listanum þá er ég fús til þess að taka því. En ég býð mig fram í fyrsta sætið,“ segir Páll við Mbl.
Ásmundur Friðriksson, sem er þriðji þingmaður flokksins í kjördæminu, hefur einnig gefið kost á sér í fyrsta til annað sætið í prófkjörinu.
Tveir flokkar höfðu samband
Í viðtali við Pál í DV um miðjan júlí kom fram að stuðningsmenn tveggja stjórnmálaflokka hafi talað við hann um að fara í framboð fyrir þá í haust. Hann segir að í fyrsta sinn sem honum hafi boðist slíkt sé hann að hugsa málið og hafi ekki sagt þvert nei. Páll vildi ekki segja um hvaða stjórnmálaflokka væri að ræða þá.
Aðspurður hvar hann staðsetji sig í hinu pólitíska litrófi sagði Páll við DV að hann væri frjálslyndur. „Sennilega myndi einhver vilja bæta við: hægra megin við miðju - en þessi vinstri/hægri skali dugar ekki jafnvel og áður til að staðsetja fólk á hinu pólitíska litrófi. Píratar fara með hæstum hæðum núna, eru þeir vinstri flokkur eða hægri flokkur? Ég veit það ekki; held helst að þeir séu hvorugt. Það unga fólk sem ég tala við notar ekki skiptinguna í hægri og vinstri með sama hætti og áður tíðkaðist og hugsar ekki eftir sömu línum og eldri kynslóðin gerir. Smám saman er þessi vinstri-hægri skali ekki lengur að svara spurningum um það hvaða pólitísku afstöðu fólk hefur í þeim mæli sem hann gerði.“