Íbúðalánasjóður láni bara þeim sem fá ekki lán annars staðar

Eygló Harðardóttir
Auglýsing

Íbúða­lána­sjóður mun aðeins veita sér­tæk lán á sam­fé­lags­legum for­sendum eða vegna mark­aðs­brests, sam­kvæmt frum­varpi Eyglóar Harð­ar­dóttur um breyt­ingar á lögum um hús­næð­is­mál. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Íbúða­lána­sjóðs til kaup­hall­ar­innar

Íbúða­lána­sjóður mun þannig hætta að lána almenn íbúða­lán nema til þeirra sem „ekki eiga kost á fast­eigna­lánum á ásætt­an­legum kjörum hjá öðrum lána­stofn­unum svo sem vegna stað­setn­ingar fast­eign­ar­innar eða af öðrum ástæð­um. Núgild­andi ákvæði um hámarks­lán og hámarks­verð fast­eigna mun hald­ast óbreytt og sama máli gegnir um greiðslu­getu lán­taka og veð­hæfi fast­eign­ar,“ segir í til­kynn­ing­unni. Fyr­ir­komu­lagið á að vera líkt og það sem tíðkast í Nor­egi og Finn­landi, þar sem Hus­banken og ARA sinna svona hlut­verki. 

Sjóð­ur­inn mun áfram lána til leigu­fé­laga sem eru rekin án hagn­að­ar­sjón­ar­miða og til sveit­ar­fé­laga. 

Auglýsing

Þetta er veru­leg breyt­ing á hlut­verki sjóðs­ins, en hann lánar nú til allra.

Íbúða­lána­sjóði verður einnig gert að hafa skýran bók­halds­legan aðskilnað á milli eldra lána­safns og skuld­bind­inga og nýrra lána og stofn­fram­laga. 

Íbúða­lána­sjóður fær nýtt hlut­verk með lög­unum um almennar íbúð­ir, sem var eitt þeirra hús­næð­is­mála sem Alþingi sam­þykkti fyrr í sum­ar. Íbúða­lána­sjóður á að ann­ast veit­ingu stofn­fram­laga til bygg­inga almennra íbúða og á að hafa eft­ir­lit með þeim aðilum sem fá slík fram­lög. Íbúða­lána­­sjóði er ætlað að hafa umsjón með fram­­kvæmd lag­anna, honum er ætlað að taka við umsóknum og taka ákvarð­­anir um veit­ingu stofn­fram­laga rík­­is­ins. Sjóð­­ur­inn metur því hvort mál­efna­­leg sjón­­­ar­mið leiði til þess að unnt sé að veita umsækj­endum stofn­fram­lög til bygg­ingar eða kaupa á almennum íbúð­um, hvort umsóknir sam­ræm­ist lögum og reglu­­gerðum og jafn­­framt hvort umrætt hús­næði telj­ist hag­­kvæmt og full­næj­­andi sem íbúða­hús­næði. Sjóð­­ur­inn á líka að meta það hvort þörf sé á leig­u­hús­næði fyrir efna­minni leigj­endur á við­kom­andi svæði og hvort fjár­­­mögnun hafi verið tryggð með full­nægj­andi hætt­i. 

Enn­fremur á sjóð­­ur­inn að hafa eft­ir­lit með þeim sem hafa fengið stofn­fram­lög frá rík­­inu og rekar almennar íbúð­ir, sam­­kvæmt frum­varp­inu. Hann  mun geta beint til­­­mælum um úrbætur til eig­enda íbúð­anna ef hann telur rekstur ekki í sam­ræmi við lög og geta til­­­nefnt eft­ir­lits­­menn til að fylgj­­ast með íbúð­unum og úrbót­u­m. 

Skýrir fram­tíð­ar­hlut­verk sjóðs­ins

Frum­varpið skýrir að ein­hverju leyti fram­tíð­ar­hlut­verk sjóðs­ins, sem hefur verið í tals­verðri óvissu vegna ýmissa þátta. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur talað fyrir því að sjóð­ur­inn yrði leystur upp

Afkoma Íbúða­lána­­­sjóðs var um margt jákvæð á síð­­­asta ári, eins og Kjarn­inn fjall­aði um í mars. ­Sjóð­­­ur­inn skil­aði 1,8 millj­­­arða króna rekstr­­­ar­hagn­aði á árinu 2015, og er það annað árið í röð sem hann skil­aði hagn­aði eftir að hafa grætt 3,2 millj­­­arða króna árið 2014. Árin þar á undan höfðu hins vegar verið afar slæm. Alls tap­að­i ­sjóð­­­ur­inn tæpum 58 millj­­­örðum króna frá árs­lokum 2008 og út árið 2013. ­Rík­­­is­­­sjóður þurfti að leggja honum til 53,5 millj­­­arða króna á árinu 2009 til að halda sjóðnum gagn­andi.

Á árinu 2014 var þorri þess hagn­aðar sem Íbúða­lána­­­sjóður sýnd­i ­vegna breyt­inga á virð­is­rýrnun útlána. Þ.e. inn­­­heimt­an­­­leiki lána hans jókst um 2,5 millj­­­arða króna. Sama var upp á ten­ingnum í fyrra. Virð­is­rýrnun útlána ­lækk­­­aði um 4,4 millj­­­arða króna og útskýrir því vel rúm­­­lega allan hagn­að Í­­­búða­lána­­­sjóðs á síð­­­asta ári líka. Í til­­­kynn­ingu vegna árs­­­reikn­ings sjóðs­ins ­seg­ir: „Breyt­ing virð­is­rýrn­unar teng­ist umtals­verðri lækkun van­skila heim­ila og ­sterk­­­ari trygg­ing­­­ar­­­stöðu lána­safns­ins vegna hækk­­­ana á fast­­­eigna­­­mark­að­i.“

Útlán sjóðs­ins héldu hins vegar árfram að lækka á síð­­­asta ári líkt og árin á und­­­an. Þau lækk­­­uðu um tæpa 80 millj­­­arða króna í fyrra. Þar af voru, líkt og áður sagði, 33,8 millj­­­arðar króna vegna leið­rétt­ing­­­ar­inn­­­ar. ­Í­­­búða­lána­­­sjóður er samt sem áður langstærsti íbúða­lána­veit­andi á land­inu, þrátt ­fyrir litla útlána­veit­ingu og miklar upp­­­greiðslur árum sam­­­an. Mark­aðs­hlut­­­deild hans, sam­­­kvæmt útreikn­ingum Kjarn­ans, er rúm­­­lega 40 pró­­­sent á íbúða­lánum til­ ein­stak­l­inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None