Hlutdeild prentmiðla í auglýsingatekjum hríðfellur áfram

Lestur Morgunblaðsins, stærsta áskriftardagblað landsins, hefur farið úr 42 prósent í byrjun árs 2009 í 28 prósent.
Lestur Morgunblaðsins, stærsta áskriftardagblað landsins, hefur farið úr 42 prósent í byrjun árs 2009 í 28 prósent.
Auglýsing

Hlut­deild dag­blaða í aug­lýs­inga­birt­ingum hjá birt­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Birt­ing­ar­hús­inu hefur farið úr 44,5 pró­sent árið 2007 í 22 pró­sent það sem af er þessu ári. Frá 2014 og fram til dags­ins hefur hlut­deild dag­blaða farið úr 32,4 pró­sent niður í 22 pró­sent. Þetta kemur fram í frétt um miðla­köku Birt­inga­húss­ins fyrir fyrri hluta árs­ins 2016. 

Engar mið­lægar upp­lýs­ingar hafa verið til um hvernig aug­lýs­ingafé skipt­ist í heild á milli fjöl­miðla á Íslandi. Fjöl­miðla­nefnd tók saman upp­lýs­ingar í fyrra í sam­starfi við fimm stærstu birt­ing­ar­hús lands­ins sem sýndu skipt­ingu birt­ing­ar­fjár milli miðla á árinu 2014. Þar kom fram að prent­miðlar tóku enn mest til sín á því ári, eða 37 pró­sent. Þar voru dag­blöð og tíma­rit hins vegar mæld saman undir hatt­inum prent­miðl­ar. Þá fór ein­ungis 15 pró­sent birt­ing­ar­fjár til vef­miðla.

Birt­ing­ar­húsið hefur eitt slíkra fyr­ir­tækja reglu­lega birt tölur um hvernig birt­ingafé skipt­ist á milli miðla hjá sér. Stóru frétt­irnar í nýj­ustu töl­unum sem fyr­ir­tækið hefur birt eru að hlut­deild sjón­varps hefur vaxið umtals­vert (tekur nú til sín 38 pró­sent af kök­unni en var með 29,5 pró­sent hennar 2014) en hlut­deild dag­blaða minnkað veru­lega. 

Auglýsing

Í frétt Birt­ing­ar­húss­ins seg­ir: „Sjón­varps­miðlar spegl­uðu í fyrra rétt tæpan þriðj­ung af velt­unni. Ástæður aukn­ing­ar­innar á milli tíma­bila geta verið nokkr­ar. Klárt er að Evr­ópu­mótið í fót­bolta gerði heil­mik­ið. Einnig voru stöðv­arnar með dag­skrár­efni sem náði vel til land­ans.  Má þar nefna Ófærð og Ligeglad í Sjón­varp­inu, Big­gest Loser Ísland á Skjá­Einum (núna Sjón­varp Sím­ans) og Ísland Got Talent á Stöð 2. Einnig mynd­uð­ust tals­verðir „frétta­topp­ar“ á tíma­bil­inu meðal ann­ars í kringum Wintris-­málið og for­seta­kosn­ing­arn­ar.“

Miklu færri lesa dag­blöð

Sam­dráttur í birt­ing­arfé dag­blaða hefur hins vegar verið gríð­ar­legur á und­an­förnum árum sam­hliða hríð­fallandi lestri á þeim. Frétta­blað­ið, sem er dreift frítt í 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unn­ar, var til að mynda lesið af 64 pró­sentum lands­manna árið 2010. Í nýj­ustu fjöl­miðla­könnun Gallup mæld­ist lest­ur­inn 47,6 pró­sent. að er fyrst og fremst yngra fólk sem er hætt að lesa Frétta­­blað­ið. Í síð­­asta mán­uði fór lestur þess hjá fólki á aldr­inum 18-49 ára niður í 40,1 pró­­sent. Fyrir sex árum síðan lásu um 64 pró­­sent allra í ald­­ur­s­hópnum Frétta­­blað­ið. Lest­­ur­inn hefur því dreg­ist saman um tæp 38 pró­­sent á nokkrum árum. 

Árið 2014 fór 35 pró­sent af öllu birt­ing­arfé sem rann í gegnum Birt­ing­ar­húsið til dag­blaða og tíma­rita, öðru nafni prent­miðla. Þar af fóru 32,4 pró­sent til dag­blaða. Það sem af er ári hefur það hlut­fall verið 22 pró­sent.

Fjórð­ungur af net­birt­ingum til erlendra miðla

Mesta aukn­ingin er í aug­lýs­ingum á net­inu. Það tekur nú til sín um 19 pró­sent af birt­inga­fénu sem fer í gegnum Birt­ing­ar­húsið og í frétt fyr­ir­tæk­is­ins segir að ef fram fer sem horfir muni hlut­deild netaug­lýs­inga taka fram úr prent­miðlum fyrr en síð­ar. 

Í frétt Birt­ing­ar­húss­ins segir að sú hlut­deild sem dag­blöð hafa misst í aug­lýs­inga­tekjum hafi að mestu færst yfir til net­miðla. Þar hefur hlut­verk íslenskra miðla verið í kringum 75 pró­sent en afgang­ur­inn, um fjórð­ungur aug­lýs­inga­tekna vegna netaug­lýs­inga, fer til erlendra miðla á borð við Face­book, Youtube og Google.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None