Seðlabankinn lækkar vexti um 0,5 prósent

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bank­ans um 0,5 pró­sent­ur. Meg­in­vextir bank­ans fara því úr 5,75 pró­sentum í 5,25 pró­sent. Meg­in­vextir bank­ans höfðu hald­ist óbreyttir frá því að þeir voru hækk­aðir í 5,75 pró­sent í nóv­em­ber 2015. Seðla­bank­inn hafði legið undir ámæli fyrir að lækka þá ekki í ljósi þess að verð­bólga hefur nú verið undir verð­bólgu­mark­miði hans síðan í febr­úar 2014 og mælist sem stendur 1,1 pró­sent. Grein­ing­ar­að­ilar gera ráð fyrir að verð­bólga í ágúst verði enn lægri og fari undir eitt pró­sent. Flestir þeirra höfðu samt sem áður spáð því að meg­in­vextir Seðla­bank­ans yrðu óbreytt­ir. Svo varð ekki. Ákvörðun pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar ætti að hafa þau áhrif að breyti­legir vextir við­skipta­vina fjár­mála­stofn­anna lækki og þau kjör sem þær bjóða nýjum lán­tak­end­um.

Háir vextir Seðla­bank­ans hafa verið rök­studdir með því að verð­bólga væri í kort­unum í náinni fram­tíð. Það sem héldi henni niðri væri fyrst og síð­ast styrk­ing krón­unnar og lágt verð á olíu og öðrum hrá­vörum á heims­mark­aði.

Í frétt á vef Seðla­bank­ans segir að verð­bólgu­horfur hafi batnað frá síð­ustu spá hans. „Hald­ist gengi krón­unnar óbreytt er útlit fyrir að verð­bólga verði undir mark­miði fram á næsta ár. Sam­kvæmt spánni mun hún aukast þegar inn­flutn­ings­verð­lag hættir að lækka og áhrif geng­is­hækk­unar fjara út. Verð­bólgan eykst þó hægar og verður ekki eins mikil og áður var spáð. Hækki gengið áfram verður hún að öðru óbreyttu minni en grunn­spáin gerir ráð fyr­ir.

Auglýsing

Aðhalds­söm pen­inga­stefna hefur haldið aftur af láns­fjár­eft­ir­spurn og stuðlað að auknum sparn­aði og þannig rennt stoðum undir meiri við­skipta­af­gang og hækkun krón­unn­ar. Ásamt hag­stæðum ytri aðstæðum hefur pen­inga­stefnan því leitt til minni verð­bólgu og nýlega til þess að verð­bólgu­vænt­ingar eru nálægt verð­bólgu­mark­mið­inu. Af sömu ástæðum hafa raun­vextir hækkað nokkuð að und­an­förnu umfram það sem fyrri spár bank­ans sem byggð­ust á óbreyttu gengi gerðu ráð fyr­ir.

Vís­bend­ingar eru um að pen­inga­stefnan hafi náð meiri árangri und­an­farið en vænst var fyrr á þessu ári. Því er útlit fyrir að hægt verði að halda verð­bólgu við mark­mið til miðl­ungs­langs tíma litið með lægri vöxtum en áður var talið. Líkur á vax­andi spennu í þjóð­ar­bú­skapnum og óvissa í tengslum við losun fjár­magns­hafta kalla þó á var­færni við ákvörðun vaxta. Hvort þeir lækki frekar eða þurfi að hækka á ný mun á næst­unni ráð­ast af efna­hags­þróun og því hvernig tekst til við losun fjár­magns­hafta.“

Í dag verða ný Pen­inga­mál einnig birt. Í þeim er upp­færð hag­vaxt­ar­spá Seðla­bank­ans. Sam­kvæmt henni verður hag­vöxtur í ár nokkuð meiri en spáð var í maí, eða 4,9 pró­sent. Auk þess er gert ráð fyrir áfram­hald­andi örum vexti á næsta ári. „Þrátt fyrir miklar launa­hækk­anir og aukna fram­leiðslu­spennu hefur verð­bólga hald­ist undir mark­miði um tveggja og hálfs árs skeið. Í júlí mæld­ist hún 1,1% og hefur ekki mælst minni frá árs­byrjun 2015. Við­skipta­kjara­bati, lítil alþjóð­leg verð­bólga, aðhalds­söm pen­inga­stefna og hækkun gengis krón­unnar hafa vegið á móti áhrifum launa­hækk­ana á verð­lag. Gengi krón­unnar hefur hækkað tölu­vert að und­an­förnu þrátt fyrir mikil gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None