Kaup lífeyrissjóðanna á Arion banka runnin út í sandinn

Arion.banki_..Sm_.ra.tib_..jpg
Auglýsing

Við­ræður um kaup hóps líf­eyr­is­sjóða á 87 pró­sent hlut Kaup­þings í Arion banka hafa runnið út í sand­inn. Þetta hefur gerst sam­hliða því að nýir stjórn­endur hafa tekið við hjá Kaup­þingi í kjöl­far þess að nauða­samn­ingur bank­ans var klár­aður um síð­ustu ára­mót og eign­ar­halds­fé­lagið Kaup­þing tók við eft­ir­stand­andi eignum hans. Engar við­ræður eru í far­vatn­inu. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. 

Kaup­þing þarf að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­lok 2018. Tak­ist það ekki mun rík­is­sjóður leysa bank­ann til sín. Þetta var hluti af því sam­komu­lagi sem kröfu­hafar Kaup­þings gerðu við ríkið þegar samið var um upp­gjör á slita­búi bank­ans á síð­asta ári. For­svars­menn Kaup­þings vildu ekki ræða við Morg­un­blaðið um hvernig þeir hyggð­ust losa sig við eign­ar­hlut­inn innan þess tíma­frests sem gef­inn hefur ver­ið.

DV greindi frá því í byrjun viku að hópur um 20 starfs­manna Kaup­þings ætti von á sam­tals 1,5 millj­arði króna í bón­us­greiðslur ef sala á eignum félags­ins gengi vel á næstu tæpu tveimur árum. Þær bón­us­greiðslur ná ekki til æðstu stjórn­enda Kaup­þings og þykir lík­legt að sér­stakt bónus­kerfi, með hærri greiðsl­um, verði sett upp fyrir þá. Lang­verð­mætasta eign Kaup­þings er hlut­ur­inn í Arion banka. 

Auglýsing

Bjarna fannst hug­myndin skrýtin

Greint var frá því í fréttum í nóv­em­ber í fyrra að stærst­u líf­eyr­is­­sjóðir lands­ins hafi hug á því að kaupa Arion banka af kröf­u­höf­um ­Kaup­­þings og að þeir hafi ráðið menn til að halda sér­­stak­­lega utan um það ­ferli. Það gerð­ist í kjöl­far þess að fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tæk­in Virð­ing og Arct­­­ica Fin­ance reyndu að setj­a ­saman hóp til að kaupa bank­ann, m.a. með aðkomu líf­eyr­is­­sjóð­anna. Þeir ákváðu frekar að sleppa milli­­liðnum og ráð­­ast sjálfir beint í það verk­efni að reyna að eign­­ast bank­ann.

Stærst­u líf­eyr­is­­­sjóð­ir lands­ins, Líf­eyr­is­­­sjóður starfs­­­manna rík­­­is­ins (LS­R), Líf­eyr­is­­­sjóð­­ur­ versl­un­­­ar­­­manna og Gildi líf­eyr­is­­­sjóður leiddu verk­efn­ið. Öll­u­m líf­eyr­is­­­sjóð­u­m lands­ins var boðið að vera með.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerði þessi fyr­ir­hug­uðu kaup að umtals­efni á á umræð­u­fundi um eign­­ar­hald á at­vinn­u­­fyr­ir­tækj­um, hlut­verki líf­eyr­is­­sjóða og áhrif á sam­keppni sem haldn­ar voru á Hilton Reykja­vik Nor­d­ica í maí. Hann ­sagði að staðan hafi verið þannig einn dag­inn að ólík verð­bréfa­­fyr­ir­tæki hefð­u verið að koma sér fyrir til að keppa um hlut í banka en svo hafi hann les­ið einn dag­inn frétt um að líf­eyr­is­­sjóð­irnir ætl­­uðu ekki að starfa með þeim held­ur að taka sig saman og kaupa banka. Þá yrði þetta orðið dálítið skrýt­ið. Líf­eyr­is­­sjóð­irnir eru með um 45 pró­­sent af skráðum hluta­bréfum og eru svo farnir að tala sig saman um að kaupa fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki sem eru að þjón­usta ­fyr­ir­tækin sem þeir eru aðal­­eig­endur að[...]Þetta slær mig mjög illa og auð­vitað er ástæða til að staldra við.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None