Ætlun eignarhaldsfélagsins Kaupþing um að borga 20 manna hópi lykilstarfsmanna samtals 1,5 milljarð króna í bónus fyrir að selja eignir félagsins lykta af sjálftöku. Slíkir samningar eru fullkomlega óeðlilegir árið 2016. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. RÚV greinir frá.
„Þegar menn taka enga áhættu, eru bara að mæta í vinnuna, og eru að semja við jafnfurðuleg fyrirbæri og þessar skeljar af gömlu bönkunum eru í einhverju svona lokuðu mengi, þá verður allt málið að skoðast í öðru ljósi. Þess vegna kemur strax upp í hugann orðið „sjálftaka“ þegar maður sér svona niðurstöðu,“ segir Bjarni.
Greint var frá því í DV í vikunni að um tuttugu starfsmenn eignarhaldsfélagsins Kaupþings, sem tók við hlutverki slitabús Kaupþings að loknum nauðasamningum bankans í lok árs í fyrra, geta fengið samtals tæplega 1.500 milljónir króna í bónusgreiðslur ef markmið um hámörkum á virði óseldra eigna félagsins næst. Bónusgreiðslurnar eiga að greiðast út ekki síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eign Kaupþings er 87 prósent hlutur í Arion banka, viðskiptabanka sem starfar að mestu á íslenskum markaði og var endurreistur af íslenska ríkinu með íslenskum innstæðum.
Þar segir að 20 manna hópurinn sé að stórum hluta sá sami og hafi þegar fengið bónusgreiðslur upp á tugi milljóna króna þegar Kaupþing lauk nauðasamningsgerð um síðustu áramót. Greiðslurnar sem þeir eiga nú von á eru hins vegar mun hærri. Samkvæmt frétt DV geta einstakir starfsmenn í sumum tilfellum fengið um og yfir 100 milljónir króna í sinn hlut.
Bónuskerfið er hluti af starfskjarastefnu fyrir starfsmenn Kaupþingbs sem lögð verður fyrir aðalfund félagsins sem fer fram 30. ágúst, í næstu viku. Í henni er sérstaklega tekið fram að bónuskerfið nái ekki til stjórnar og annarra æðstu stjórnenda Kaupþings, en sá hópur telur samtals fimm manns. Í DV segir hins vegar að hugsanlega verði komið upp sérstöku bónuskerfi fyrir þá.