Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík. Nái hún markmiði sínu mun hún leiða annað Reykjavíkurkjördæmið fyrir flokkinn í komandi kosningum. Í gær tilkynnti Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að hann sæktist líka eftir öðru sæti í prófkjöri flokksins. Þau sækjast því eftir sama sæti.
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, er talin líkleg til að sækjast eftir fyrsta sætinu í Reykjavík og þar með leiða hitt kjördæmið. Sigríður lenti í sjöunda sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks fyrir þingkosningarnar 2013 og var varaþingmaður flokksins í upphafi kjörtímabils. Hún tók sæti Péturs H. Blöndal á þingi þegar hann lést sumarið 2015.
Hanna Birna Kristjánsdóttir og Illugi Gunnarsson leiddu lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur í síðustu þingkosningum. Þau hafa bæði tilkynnt um að þau ætli sér að hætta í stjórnmálum og bjóða sig því ekki aftur fram í haust. Þá var Pétur H. Blöndal í öðru sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í síðustu kosningum.