25 þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort flugvöllur og miðstöð innanlands- og sjúkraflugs skuli áfram vera í Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Þingmennirnir koma úr Vinstri grænum, Framsóknarflokknum, Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni.
Ögmundur Jónasson og Lilja Rafney Magnúsdóttir úr VG, Kristján Möller úr Samfylkingunni og þau Elín Hirst, Jón Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson, Brynjar Níelsson, Geir Jón Þórisson, Haraldur Benediktsson, Valgerður Gunnarsdóttir og Vilhjálmur Árnason úr Sjálfstæðisflokknum.
Allir þingmenn Framsóknarflokksins sem ekki eru í ríkisstjórn eru flutningsmenn, fyrir utan Frosta Sigurjónsson sem ekki er flutningsmaður tillögunnar. Þetta eru þau Höskuldur Þórhallsson, Ásmundur Einar Daðason, Elsa Lára Arnardóttir, Haraldur Einarsson, Jóhanna María Sigmundsdóttir, Karl Garðarsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Willum Þór Þórsson, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egilsdóttir.
Markmið þjóðaratkvæðagreiðslunnar er að þjóðin fái tækifæri til þess að segja hug sinn um málið og hafa áhrif á það hvar flugvöllurinn og miðstöð innanlands- og sjúkraflugs verða í fyrirsjáanlegri framtíð, að því er fram kemur í greinargerð með frumvarpinu. m.a. „Ljóst er að ríkir almannahagsmunir felast í greiðum samgöngum innan lands og að staðsetning flugvallarins og miðstöðvar innanlandsflugs hefur afar mikla þýðingu í því samhengi. Þá er ekki síður ljóst að vegna sjúkra- og neyðarflugs, svo og hlutverks síns sem varaflugvöllur, gegnir flugvöllurinn mjög mikilvægu öryggishlutverki fyrir almenning,“ segir í tillögunni.
Þá er sagt brýnt að þjóðin fái tækifæri til að segja hug sinn varðandi málið og hafa þannig áhrif á endanlega niðurstöðu málsins, sem gæti meðal annars falist í tilfærslu á skipulagslegu ákvörðunarvaldi með lögum.