Engin staðfest ummerki fundust um það að innbrot hafi átt sér stað í tölvu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáverandi forsætisráðherra, við ítarlega skoðun rekstrarfélags stjórnarráðsins.
Þetta kemur fram í svari rekstrarfélagsins við fyrirspurn Kjarnans, en Sigmundur Davíð hélt því fram í ræðu á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins um helgina að brotist hafi verið inn í tölvuna hans. „Ég veit að það var brotist inn í tölvuna hjá mér,“ sagði Sigmundur Davíð í ræðunni. Hann hafi látið yfirfara hana hjá öryggisfulltrúa í stjórnarráðinu og þar hafi fundist merki um að reynt hafi verið að brjótast inn. Við eftirgrennslan Kjarnans um helgina staðfesti Sigmundur Davíð það sem hann fullyrti í ræðu sinni um að reynt hafi verið að brjótast inn í tölvuna hans.
Sigmundur Davíð óskaði eftir því við rekstrarfélag stjórnarráðsins þann 1. apríl síðastliðinn að tölvan hans yrði skoðuð vegna „rökstudds gruns hans um mögulegt innbrot“ í tölvuna. Þetta kemur fram í svari rekstrarfélagsins við fyrirspurn Kjarnans. Það er nokkrum dögum áður en hann sagði af sér sem forsætisráðherra, en það gerði hann þann 5. apríl.
„Rekstrarfélag Stjórnarráðsins sér um rekstur staðarnets Stjórnarráðsins og þjónustar þær útstöðvar sem tengjast því, tölva forsætisráðherra er þar á meðal. Rekstrarfélagið sér einnig um tölvuöryggismál Stjórnarráðsins. Þann 1.apríl 2016 barst félaginu beiðni frá forsætisráðherra um að skoða tölvu ráðherra vegna rökstudds gruns hans um mögulegt innbrot. Við ítarlega leit fundust ekki staðfest ummerki að innbrot hafi átt sér stað,“ segir í svari Guðmundar Halldórs Kjærnested, framkvæmdastjóra rekstrarfélagsins, við fyrirspurn Kjarnans.
Fyrr í dag greindi Vísir frá því að innbrot í tölvu forsætisráðherra hefði ekki verið tilkynnt til ríkislögreglustjóra, sem fer með brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess.